Ósonlagið

 

eftir

Herdísi Ernu Gunnarsdóttur

 

Kynning | Verkefni| Ferli | Bjargir | Mat | Niðurstaða

 

Kynning

Ósonlagið er hjúpur yfir jörðinni okkar sem ver okkur gegn skaðlegum geislum sólarinnar. Ósonlagið eyðist alltaf meir og meir þrátt fyrir að reynt sé að koma í veg fyrir það. Nú ímyndum við okkur að við séum rannsóknarmenn. Okkur langar til að fræðast meira um ósonlagið og í framhaldinu að fræða aðra um nauðsyn ósonlagsins og um skaðleg áhrif eyðingu þess.

 

Við höfum fengið fréttir af nokkrum fyrirtækjum sem sleppa út í andrúmsloftið efnum sem skaða ósonlagið. Við ætlum að komast að því hvaða efnum þeir sleppa út í andrúmsloftið og fá þá á fund með okkur, ásamt fulltrúum frá bænum. Að sjálfsögðu reynum að fá þá til að hætta aðgerðunum.

 

 

Verkefni

Þið eigið að undirbúa fund þar sem verða fulltrúar fyrirtækjanna, bæjarins og nemenda. Á fundinum eigið þið að gera grein fyrir því sem þið komust að. Einnig eigið þið að leggja fram tillögur að úrbótum.

Afrakstur verkefnis eru þá gögn sem myndu nýtast á fundi sem þessum eins og kynningarbæklingur um áhrif skaðlegra efna á andrúmsloftið og annar bæklingur þar sem tillögur eru kynntar. Einnig skal útbúa glærur sem nota á í fyrirlestur á fundinum. Rökstyðja verður hvers vegna fyrirtækin ættu að minnka og hætta losun skaðlegra efna út í andrúmsloftið. Í lokin verður efnið sett inn á Netið.

 

 

Ferli

  1. Kennari skiptir nemendum í hópa. Í hverjum hóp er gert ráð fyrir 3 til 5 nemendum og að verkefnið taki 6 til 8 kennslustundir ásamt heimavinnu.
  2. Hver hópur fær ákveðið verkefni til að vinna að.
  3. Kennari útdeilir verkefnum og bendir á þau hjálpargögn sem til þarf.
  4. Eftir að hver hópur hefur kynnt sér grunnupplýsingarnar vinnur hann að sínu verkefni.
  5. Ráðgert er að allir hópar hittist eftir hverja tvo tíma og skipuleggi framhaldið í sameiningu ásamt að segja frá hver staðan er.
  6. Eftir 6. eða 8. tímann á allt saman að vera til reiðu fyrir fundinn.
  7. Hægt er að setja á fót fund en það mætti einnig sleppa því og í staðinn myndu nemendur hittast og hver hópur gerði þá grein fyrir vinnu sinni.

 

Hópur A: Býr til kynningarbækling. Í honum eiga að vera allar grunnupplýsingar um ósonlagið, skaðleg efni og verndum hans. T.d. skal vísa í lög og reglugerðir og þá sáttmála sem gerðir hafa verið.

Hópur B: Býr til bækling þar sem fram koma tillögur að úrbótum.

Hópur C: Vinnur náið með hópi A og B en hópurinn á að útbúa fyrirlesturinn og sér um stutta glærukynningu með fyrirlestrinum. Gert ráð fyrir kunnáttu á Power Point.

Hópur D: Býr til veggspjöld með helstu upplýsingum. Efnið er svipað og í bæklingnum. Þar eiga að vera tölfræðilegar upplýsingar og myndir.

Hópur E: Í lokin á einn úr hverjum hóp að sinna vefgerð í umsjón kennara þar sem efnið er kynnt.

 

 

Bjargir

Allir hópar kynna sér ákveðnar grunnupplýsingar. (Ath. listinn er ekki tæmandi).

Þær eru:

 

 

Margir vefir eru til um umhverfismál. Hér er bent á nokkra sem hóparnir eru beðnir um að fletta upp í og nota. Þið megið einnig leita sjálf á Netinu.

 

Ósonlagið

 

Náttúrufræðivefur Fræðslumiðstöðvar

Náttúruhamfarir og mannlíf

Náttúruvernd umhverfismennt

 

 

 

Verndun osonlagsins
Meira um ósonlagið L ofthjúpur jarðar er nauðsynlegur til að lífvænlegt sé á jörðinni . Lofthjúpurinn sem skiptist í mörg hvolf, gleypir skaðlega geislun frá sólu. Hann hindrar einnig að hluti varmans sem jörðin ...
http://www.hollver.is/mengun/Oson/meira.htm - size 3.1K

 

Mengun andrúmsloftsins - 1C
Olíuafurðir á borð við bensín eru að meginhluta kolefni. Við brennslu þessara efna gengur kolefnið í samband við súrefni loftsins C(s) + O2(g)=CO2(g). CO2 kemur aðallega úr púströrum bíla. Kotvísýringur er ...
http://www.kvenno.is/socrates/pages/Verk1C.htm - size 16.1K

21%

19 Apr 99

Finna svipað

 

Ósonlagið og verndun þess
- Upplýsingar frá Hollustuvernd ríkisins um ósonlagið, ósoneyðandi efni, alþjóðlega samninga til verndunar ósonlaginu og reglur þar að lútandi á Íslandi.
(Sent: 4-des.-1998 Skoðað: 225)

Fyrir þá allra hörðustu:

FAQ about Ozone Depletion
Algengar spurningar um ósonlagið

The Ozone Layer
Upplýsingar um ósonlagið. Hvað það er, minnkun og annað.

 

 

Mat

Kennari metur alla vinnu nemenda eins og hægt er. Gefin er hópeinkunn. Gefið verður frá tölunum 1 og upp í 10. Svokallað símat fer fram þ.a. kennari kemur til með að fylgjast með og skoða vinnu nemenda í hverjum tíma og einnig eftir hvern tíma. Matsþættir:

 

 

Niðurstaða

Nú áttu að vita ýmislegt um ósonlagið; hverjir eiginleikar þess eru, hvaða hlutverki það gegnir fyrir líf á jörðinni, hvernig hægt er að vernda það og hvaða efni eru skaðleg því. Getur þú kennt öðrum hvernig þeir geti forðast eyðingu ósonlagsins ? Eins og bent var á hér að ofan eru margir vefir um umhverfismál til inni á Netinu. Einnig hafa verið ritaðar margar bækur og greinar um þessi mál. Kynntu þér málin.

Seinast uppfært 20.nóv. 1999