Auðlindir í nútíð sem framtíð

eftir
Hildi Ingólfsdóttur
 
Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

Kynning

Stjórnskipulagi Íslands hefur verið breytt og nú er Íslandi skipt í fjóra hluta. Landinu er skipt eftir
landshlutum og eru það vestfirðir, austur-, norður-, suður-, og vestur- hlutar landsins.

Þú hefur verið kosinn leiðtogi austur- hlutans. Nú er það á þína ábyrgð að sjá til þess að þegnar þínir hafi
sem mest að bíta og brenna og að auðlindum þeim sem tilheyra ykkur séu sem best nýttar í nútíð sem
framtíð.

Verkefni

Sem leiðtogi SV- hluta landsins þarft þú nú að kynna þér við hvaða aðstæður fólkið þitt býr. Þegar því er
lokið þarf að vega og meta þær auðlindir sem eru til staðar t.d. nýtanlega fiskistofna, hvort hætta sé á
ofnýtingu og þess háttar. Einnig þarftu að kanna hvort um einhverja hagsmunaárekstra er að ræða til að
mynda á milli ferðamannaiðnaðar og stóriðju.

Bjargir

Á Netinu er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar sem þú getur nýtt þér. Gott væri að athuga ástand
fiskistofna og hvaða fiskistofnar eru í ykkar lögsögu hjá Hafrannsóknarstofnun. Nauðsynlegt er að skoða sem flestar hliðar fiskveiða. Athugaðu síður um ferðamál. Til að geta metið hagsmunarárekstra er gott að skoða fyrirhugaða uppbyggingu stóriðja á austurlandi. Gott væri að afla sér almennra upplýsinga um svæðið. Það sem er efst á baugi á austurlandi finnur þú hér. Og svo má notast við leitarvélar til að athuga hvort um sé að ræða fleiri upplýsingar á Netinu. 

Ferli

  1. Hafa ber í huga að þetta verkefni krefst þess að unnið sé í hópum. Gott væri að skipta nemendum í 3 -4

  2. manna hópa. Hver hópur tekur að sér að afla upplýsinga um ákveðið efni.

      1.Ákveða hvað skal taka fyrir.
      2.Skipta verkum milli þeirra sem í hópnum eru.
      3.Skipuleggja upplýsingaöflun.
      4.Takið saman þær upplýsingar og komið með tillögur að því hvernig best væri að skipuleggja
         atvinnulífið á svæðinu. Þið þurfið að rökstyðja vel niðurstöður ykkar.
      5.Niðurstöðum má skila skriflega eða í fyrirlestrarformi. Gott væri að notast við ýmis gögn til
         rökstuðnings t.d. flæðirit eða töflur.

Mat

Við mat verður tekið tillit til einstaklingsvinnu til jafns við hópavinnu. Notaðir verða gátlistar sem gætu t.d.
litið svona út;

Einstaklingsmat:

        Viðhorf

        Virkni

        Sjálfstæði

        Samstarfshæfni

Mat á hópastarfi

        Samvinna

        Framsetning

        Notkun heimilda

        Frumleiki

Niðurstaða

Nú hafið þið kynnst hluta af því sem stjórnendur lands þurfa að þekkja vel. Sjávarafurðir eru okkur
mikilvæg auðlind en ekki má horfa fram hjá öðrum auðlindum svo að atvinnulíf verði ekki of einhæft.

Seinast uppfært 15. nóv. 1999
Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.