eftir
Kristínu Marti
Góðan
daginn góðir nemendur mínir! Hver hefur ekki heyrt um
Keikó, fræga hvalinn sem er búinn að ferðast
frá Íslandi til Bandaríkjanna og til baka? Það
eru til ótalmargir minnjagrípir, myndir og bækur um
hann. Flutningurinn hans til Íslands var mjög umræddur.
Sumir sem vildu fá hann heim vildu græða á honum
(það er mikil auglýsing að fá hann heim), aðrir
vildu fá hann heim til þess að aðlaga hann að
nýju köldum sjó og gefa honum síðan frelsið,
enn aðrir sem voru á móti flutingnum voru hræddir
um það að það væri allt of mikil álag
á hvalinn.
Keikó er frægur, í útlöndum og hérlendis. En hvað vitum við meira um hvali? Fyrst við erum með svona frægan hval verðum við líka að vera fróð um hvali!
![]()
Þið eruð leiðsögumenn í erlendum ferðamannahópi sem hefur mikinn áhuga á hvölum. Þeir hafa séð hvali í myndum, en vita ekkert um þá. Eins og margir erlendir ferðamenn eru þeir á móti hvalveiðum.
Ykkar verkefni er að upplýsa hópinn á áhugaverðan hátt um:
1.Lífshætti hvala
2.Hvalveiði Íslendinga áður fyrr
3.Hvað er hægt að framleiða úr hvölum?
4.Hvalveiði Íslendinga í dag
5.Rök með og á móti hvalveiðum
Þið eruð að semja ræðu um þessi atriði og ræðan má auðvitað ekki vera of langdregin, því að þá missir fólkið áhugan (alveg eins og þið verðið þreyttá löngu ræðunum mínum…). Reynið að gera ræðuna á þann hátt að hún vekur áhuga hjá fólkinu og reynið að vera hlutlaus í 5.
èSeinna
munum við nota þettaverkefni
í ensku, þar sem við ætlum að senda krökkunum
í Sviss þær upplýsingar sem við höfum
aflað okkur!
Til þess að leysa verkefniuð
þurfið þið auðvitað að afla ykkur upplýsingar.
Hér á eftir fylgir listi um vefslóðir og bækur
sem gætu verið áhugaverðar fyrir ykkur. En að
sjálfsögðu megið þið líka skreppa
niður í bókasafnið eða leita að finna aðrar
vefslóðir!
·Í
bókinni “Umhverfið – skiptir það málið?”
eftir Stefaníu Björnsdóttur á bls. 53-55 finnið
þið ágrip úr sögu hvalveiða Íslendinga
og umfjöllun um verndun hvala.
·Hvalaverkefni
7. bekkjar Borgarhólsskóla sem fór að heimsækja
Hvalasafnið á Húsavík. http://rvik.ismennt.is/~bhnem001/myndir.htm
·Hvalir
og menn. Verkefni sem var unnið í Víkurskóla.
http://www.ismennt.is/vefir/kidlink/verkefni/hv...oli/haegri.html
·Íslenskir
hvalir fyrr og nú. http://www.mm.is/Baekur/533080.htm
·Hvalaskoðun
á Íslandi. http://www.khi.is/~hafid1/Hvalaskodun.html
1.Kennarinn
er búinn að skipta ykkur í tveggjamanna hópa.
Þið skulið skiptast á í því að
skrifa á tölvunni. Annar er ritarinn en hinn ekki skal orða
textann fyrir ritarann. 2.Opnið
nýtt Word skjal og vistið það. 3.Leysið
verkefnin sem eru lýst hér fyrir ofan. Leysið þau
í þeirri röð og þau eru uppsett. 4.Kennarinn
er hérna til þess að veita ykkur aðstoð! 5.Notið
myndir þar sem ykkur finnst þær eiga við! 6.Tengið
öll atriðin þannig að þau myndi eina heild. 7.Prentið
út 3 eintök. Eitt fyrir hvort ykkar, og eitt fyrir kennarann.
Seinast
uppfært 21.feb. 2001. Salvör
Gissurardóttir þýddi þetta snið frá
The
Webquest Page.
Kennarinn leggur áherslu á það að
kynningin sé áhugaverð, upplýsandi og hnitmiðuð.
Hópvinnan verður metin sem ein heild.
Niðurstaða