Saga Kvennakórs Bolungarvíkur  

Upphafið að Kvennakórnum má rekja aftur til ársins 1995.  Þá myndaðist utan um kirkjukór Bolungarvíkur blandaður kór sem æfði létta dagskrá jafnhliða hinum hefðbundna starfi kirkjukórsins.  En einhverra hluta vegna kvarnaðist verulega úr karladeildinni eftir áramót ’95-’96.

Þar sem konur láta ekki deigan síga myndaðist föngulegur kvennakór sem hélt sína fyrstu tónleika 26. apríl 1996, þ.e. á Sumardaginn fyrsta.  Stefna kórkvenna var upphaflega sú að enda vetrarstarfið ár hvert á Sumardaginn fyrsta, en eitt og annað hefur komið í veg fyrir það svo tónleikar síðustu árin hafa verið einhvern tíma í maí.

Fyrsti stjórnandi kórsins var Hannes Baldursson og undirleikari Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir. 

Allt frá vetrinum 1996-1997,  hafa þær Margrét Gunnarsdóttir og Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir æft kórinn, stjórnað honum og séð um undirleik.  Þær eru einstaklega natnir, þægilegir og þolinmóðir stjórnendur. 

 Þær hófu báðar nám í Tónlistarskóla Ísafjarðar ungar að árum.  Á menntaskólaárunum stjórnuðu þær unglingakór við Gagnfræðaskóla Ísafjarðar, síðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík.  Margrét hélt síðan til Hollands þar sem hún lauk prófi frá Sweelinck Conseruatorium.  Margrét er nú skólastjóri og tónlistarkennari við Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði og organisti við Suðureyrarkirkju.  Guðrún er tónlistarkennari við Tónlistarskólann í Bolungarvík og organisti í Hólskirkju Bolungarvík.

Um haustið 1996 bættust enn fleiri konur í hópinn og Kvennakór Bolungarvíkur var formlega stofnaður árið 1997.  

Með honum hafa starfað á bilinu 25 til 40 konur.  Reglubundnar æfingar eru einu sinni í viku frá september til maíloka, á þriðjudögum kl. 20:15.  
Að auki eru svo raddæfingar einu sinni í mánuði og raddþjálfari hefur líka verið fenginn til að koma reglulega.  Einnig hefur verið farið nokkrum sinnum í æfingabúðir að Núpi í Dýrafirði.

Kórinn hefur komið fram við ýmis tækifæri í Bolungarvík og víða um Vestfirði t.d. á aðventunni sem og á þremur Þjóðahátíðum Vestfjarða, 50 ára vígsluafmæli Óshlíðarinnar, 30 ára afmæli Bolungarvíkurkaupstaðar auk tónleikahalds víða og oft hefur hann sungið með öðrum kórum eins og Sunnukórnum á Ísafirði.  Þá hefur Kvennakórinn Seljurnar komið vestur og kórinn sungið með honum og Kvennakór Hólmavíkur að ógleymdum Kvennakór Reykjavíkur.  Og eru þessar heimsóknir í minnum hafðar hér hjá okkur.  

Einnig hefur kórinn stundum fengið til liðs við sig einsöngvara eins og Sigrúnu Pálmadóttur, sópransöngkonu og hljómsveitir ýmsar. 

Nokkrar ferðir hefur kórinn farið í og má þar telja söngferð til Grundarfjarðar og Ólafsvíkur á Snæfellsnesi 1999.  Norræna kóramótið sem haldið var í Reykjavík árið 2000, og kom kórinn þá m.a. fram í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Einnig fór kórinn á  Landsmót Kvennakóra í Keflavík 2002.  Þá fórum við árið 2002 til Reykjavíkur og komum fram á "Laugardagskvöldi á Gili"  í Ými sem er sönghús Karlakórs Reykavíkur.  

Þá stóð Kvennakórinn fyrir Kvennafjöri í Bolungarvík, í febrúar 2003 sem var fjáröflunarsamkoma og tókst vonum framar.  

Nú er draumur kórkvenna að komast á Norræna kvennakóramótið sem haldið verður í Svíþjóð sumarið 2005.

 

Efst