|
Hrynjandi |
Á Íslandi hefur löngum tíðkast að yrkja taktföst ljóð. Það merkir að hrynjandi ljóðsins byggist upp á einingum, sem kallast bragliðir eða kveður. Í íslensku er alltaf áhersla á fyrsta atkvæði orðs, en sé orðið fjögur atkvæði, er aukaáhersla á þriðja atkvæði. Eins er að farið með bragliðina þar sem þeir byrja ávalt á hljómrisi og á eftir geta fylgt hljómhnig (eitt til tvö).
Lengd bragliða fer eftir
atkvæðafjölda þeirra
Einliður er
eitt atkvæði
Tvíliður er tvö atkvæði
Þríliður er þrjú atkvæði
Ljóðlínur geta verið mislangar og bragliðirnir þannig verið mismargir. Ljóð eru flokkuð eftir fjölda bragliða upp í ýmsa hætti. Sjá nánar í háttatali.