Hnykkur

Hnykkur er stutt viðbót sem stundum er sett við lok ljóðs eða hendinga, hér er dæmi um Breiðhendu með hnykk á eftir hverri hendingu til þess að skerpa á áherslum.

Háreist rís við himin fögur

hljóma þarna Drottins sögur

                            sem þjóna mér.

Akureyrar kristna kirkja

kvæði skal nú um þig yrkja

                            og er það hér.

 

Okkur færir helgihaldið

hýsir Guð og kirkjuvaldið

                            sem illt vill brott

Akureyrar kristna kirkja

kærleik lýðsins sýnist virkja

                            og er það gott.

 

Inni munir finnast fríðir

fjandinn einn þó glugga prýðir

                            sem ljótt skal dæmt.

Akureyrar kristna kirkja

kölska sjálfan virðist styrkja

                            og er það slæmt.

Síðan kemur annað dæmi um hnykk í lok erindis, hér hnykkurinn orðinn meira en tveir bragliðir þannig að hann þarfnast tveggja stuðla.

 

Gallinn við íslenskar nætur

Það skapraun er að skríð’ í ból
og skapa kyrrð um bæinn,
já illt er það með sumarsól
að sofn’ um miðjan daginn,
       
því geisla um gluggann fæ inn.

Um vetur fæ ei væran blund
ég verð’ að hopp’ á fætur,
já voðaleg sú vonda stund
að vakn’ um miðjar nætur,
       
því myrkursins svefn er sætur.