Munnvörp eru 8 ljóðlínur (4 hendingar) þar sem hver þeirra eru þrír bragliðir. Rím er einugngis í síðlínum hendinga þá oftast sniðrím.

Blómavendi brattur
baldinn Frímann seldi
ýmsum óðalsköllum,
aðaldælum góðum,
geta þeir því gefið
glaðir sínum fljóðum
vendi flóruvæna.
Vel er slíkum hali.