Runhendur (eldri) kallast gömlu bragarhættirnir. allir ef þeir höfðu endarím en ekki innrím. Rímið var alltaf runurím. Tvær, fjórar eða allar ljóðlínur rímuðu saman. Fyrst kemur hér runhenda hin minnsta af hrynhendu.
Einu sinni tíkin tekin,
tukthús hreppsins inní rekin.
Taka hana enginn átti
er því von að sumir þrátti.
Af sér hefur ekkert brotið,
enga dóma grimma hlotið.
Berum áfram hátt því hausa
höfum tíkina hér lausa.