Dverghendur eru tvær hendingar (fjórar línur), framlínurnar eru fjórir bragliðir en síðlínur tveir. Öftustu bragliðir síðlina eru stýfðir, en frumlínur hafa óstýfða bragliði þó stundum klofni síðasti bragliðurinn upp í stýfðan braglið og forlið eða þögn.
Yndisþokkann æ mun sýna
öllum góð
lætur sjaldan ljós sitt skína
ljóshært fljóð
Okkar
verður árgjaldsflæði
áfram
rírt
enginn
skal því hvassyrt kvæði
kveða dýrt
Baldinn er
og burtu fer
bekkur hér.
Eftirsjá
er henni hjá
heldur smá.
Víst ég hef
ei vaskur séð
verri ref
stöðugt þrefar
maður með
merarþef.
Orgar hátt
það skorpna skar
skilur fátt
heldur fátt oft
hugsar þar
höfuðgátt.
Latur ver
sem kjaftar knár
kemur hér
svika er til falskur frár
Frímann þver.