ySamhendur eru tvær hendingar (fjórar línur), þar sem allar ljóðlínurnar eru fjórir bragliðir. Öftustu bragliðir allra ljóðlína eru stýfðir og ríma saman. Víxlrímuð kallast þessi kvæði gagaraljóð, en misrímuð stafhendur.

Urtaseyði óð í hné
er í hús á Sandi sté.
Kættist frú þótt kyndug
kerlingin og bauð sitt te.