Stafhendur eru tvær hendingar (fjórar línur), þar sem allar ljóðlínurnar eru fjórir bragliðir. Öftustu bragliðir allra ljóðlína eru stýfðir og misrímaðir. Samrímuð kallast þessi kvæði samhendur, en víxlrímuð gagaraljóð.

Hefur aldrei drýgt nein dáð
digur fær þó spott og háð
lítið vildi læra hann
lauslætinu mikið ann.

Hans var syndagatan greið
gjarnan valdi ranga leið
ekki hefur orðum sáð
eins og ritning hefir tjáð.

Hallgrím æ þó mikils met
meðal höfðingjanna set.
Lát hann sálar byggja brú
með biblíu og kærleikstrú.

Einnig er hægt að hafa stafhendur með þríliðum og er það þá orðið að tríólu.

Karlar ei hlusta á kerlingavæl,
kokhreysti sinni þeir lýsa með stæl,
en hrundirnar þurfa að hlusta á þá
og hafsjó frá mönnum af vesaldóm fá.
 

"Kvenkynið hraustara karlkyni er!"
kunngjörði Magga í fréttunum hér,
"í víðséðu sjónvarpi vasklega kannað
og vísindalega er sannað!"