Stikluvik eru tvær hendingar (fjórar línur), þar sem ljóðlínur eru fjórir bragliðir, nema síðlína fyrri hendingar er aðeins þrír bragliðir. Fjögra bragliðna ljóðlínurnar eru stýfðar, en ekki sú þryggja.

Hélt af stað í helgarferð
hann með vinum sínum,
segja frá því víst ég verð,
vísa um það skal því gerð.

 

Efrikoju sveinn í svaf
svefni hættulegum,
nóttin litla gæfu gaf
guma sem ei veitti af.

 

Einn í bakið fót hans fékk
fór samt strax að sofa.
Útúr rúmi hálfur hékk,
halur draum með slæman gékk.

 

Svo að lokum drengur datt
dreyri litar höfuð.
Illa leikinn, sjálfsagt satt,
sást með mar og trýni flatt.

 

Ógleði og heilahrist
hlaut’ann eftir byltu.
Pilt með fremur litla list
ljúfan blund því hafði misst.

 

Ævintýri efla þor
ei er því að leyna,
andlit kynntist fjalarfor
fékk í saumuð átta spor

Flutti hún á heimavist
hamingjusöm Þórey,
Halldór sinn þar hefur kysst
hélt sig ekkert geta misst.

Hent var út af heimavist
henni döpru Þórey,
hafði alltof litla lyst
lævís þóttist aldrei þyrst.