Úrkast er fjórar ljóðlínur þar sem frumlínur eru fjórir bragliðir, en síðlínur tveir. Allir bragliðir eru óstýfðir en þó klofnar oft síðasti bragliður í frumlínu, þannig að frumlínur eru stýfðar og síðlínur hafa þá forlið sem stundum fellur niður.

stuðlar hún að sterku námi

stefnir hátt

skreytir sína kennslu klámi

við krakka sátt

 

í Bósasögu blíða nafni

börnin dafni

þó ríkulega reið hún hafni

Reðursafni  

ljóðagerðarleikni fáum
ljóst ef spáum
við í rímur víst og smáum
vísum náum.

Rifist var því ræða laun

reyndist snúið

verkfall sem er vesæl raun

var ei flúið

 

áræðni og okkar dug

ei þið trúið

vorum öll í vígahug

en verkfall búið  

 

lítilsverður listamaður

lausmáll glaður

loforð brítur lævís vörður

lygamörður

 

Fljótt nú starfslok færast nær
í fáum hlakkar,
sáttfús Helga símamær
nú samstarf þakkar.

Montið tel ég merkan sið,
þó marga reiði,
sést ei hefur vestan við
Vaðlaheiði.

Rifist var því ræða laun
reyndist snúið
verkfall sem er vesæl raun
var ei flúið.

áræðni og okkar dug
ei þið trúið
vorum öll í vígahug
en verkfall búið.