Fléttubönd eru þannig að allir nema fyrstu bragliðir ljóðlína í fyrri hendingu ríma við samsvarandi bragliði í seinni hendingu.

 

Gumum níðið gefur ótt

gætni skortir Pétur,

læknar tíðum, sefar sótt

síhent ort hann getur

 

Fær nú hnjót og fléttubönd

fávís smiður ljóða,

rími móti réttir hönd

rífur niður góða.

 

Hjartað tifað hefur eitt

helming tæknialdar,

steralyfin gefur greitt

gæsku læknis tjaldar.