|
Jónas og Jórunn |
Framnesvist frá fyrrihluta 20. aldar
eftir Baldur Sveinsson
· Neðsta spil í stokki eftir stokkun segir til um hvað skuli vera tromp.
·
Trompkóngur heitir Jónas.
Trompdrottning heitir Jórunn.
· Spilin eru gefin þrjú og þrjú (fjögur í síðustu umferð)
·
Sá sem fær Jónas kallar Jórunn.
Sá sem fær Jórunni svarar Jónas
· Þeir sem hafa Jónas og Jórunni spila saman gegn hinum.
·
Þeir sem taka fleiri slagi sigra spilið og
skipta með sér stigunum.
Hver slagur umfram andstæðinga í tígli gefur 2 stig.
Hver slagur umfram andstæðinga í hjarta gefur 4 stig.
Hver slagur umfram andstæðinga í spaða gefur 6 stig.
Hver slagur umfram andstæðinga í laufi gefur 8 stig.
·
Ef sami maður hefur bæði Jónas og Jórunni
spilar hann einn gegn hinum.
Sá maður á að bjóða samning um úrslit. (ég tek 5 slagi)
Ef allir samþykkja er stigum úthlutað samkvæmt því annars er spilað.
·
Ef ekki er hægt að skipta stigunum jafnt fá hæðstu
menn minna.
Ef tveir jafnháir menn eiga að
skipta með sér stigi fellur það niður.