Hvaða ljóðstafir eiga saman?

Allir bragliðir sem byrja á sérhljóða stuðla saman og í raun hljómar það betur í sérhljóðastuðlun að láta mismunandi sérhljóða stuðla saman.

Er í stökum orðin læs                sérhljóðastuðlun
allvel þekki kvæði.
Ákaft ljóðaandinn blæs
í mitt höfuðsvæði.

Bragliðir sem byrja á sama samhljóða stuðla saman, (athuga þó s).

Lítið vit og léleg sjón                samhljóðastuðlun
latur ertu drengur.
Svanberg minn þú
fæddist flón
og
flýrð það ekki lengur.

Bragliðir sem byrja á s stuðla saman ef annar bókstafur bragliðanna stuðlar einnig.
Ef bragliðir byrja á s-samhljóðasamandi telst það
gnýstuðlun. Fagurt þykir að nota þessa reglu á samhljóðasambönd sem byrja á öðrum stöfum, þó ekki sé það skilyrði.

Hjá þér ásýnd skrattans skín                gnýstuðlun
skilnings
lausi smiður.
Þú ert bölvað
svikasvín.
Svíf til heljar niður.

Bókstafurinn É hefur einnig nokkra sérstöðu þar sem hann er bæði sérhljóði og samhljóði (je) og stuðlar hann því með orðum sem byrja á J.

Ég verð líkt og Jesús var
jafnvel nokkuð þekktur,
en losna ei við lygarnar
þó líka verði blekktur