|
Rím |
Þegar orð enda á sömu hljóðum er talað um að þau rími. Rími er skipt upp á eftirfarandi hátt:
Endarím - þegar bragliðir í enda ljóðlína ríma
Innrím - þegar bragliðir framar í ljóðlínum ríma
Það er hægt að blanda saman öllum þessum rímaðferðum þannig að til eru mörg hundruð rímnahættir. Er þeim gert frekari skil í háttatali.