Gerð ríms

Alrím kallast það þegar bæði sérhljóð og samhljóðin á eftir þeim eru þau sömu. Alltaf notað í endarími og oft í innrími. Alrím er sýnt sem fylltir kassar með sama lit.

Yndisþokkann æ mun sýna
öllum
góð
lætur sjaldan ljós sitt
skína
ljóshært
fljóð.

Sniðrím kallast það þegar einungis samhljóð á eftir stofnsérhljóða hljóma eins. Þetta rím var mikið notað áður fyrr í innrími en er orðið fátítt nú á dögum. Takið eftir samhljóðum sem fylgja stofnsérhljóði fyrsta og síðasta bragliðs hverrar ljóðlínu.

Frímanns fúli rómur,                 im - óm
fjandans lyga vöndur,    
          and - önd
spyrðir illum orðum                  yrð - orð
að mér, þegar tuðar:    
            að - uð
"virðist vinur stirður,                  irð - irð
vel á
Laugum alinn."                 el - al
Skelfing
Frímann sjálfur            elf - álf
skal samt mör sinn fela.            al - el

Hálfrím kallast það þegar einungis sérhljóðin eru eins. Þetta rím hefur lítið verið iðkað hérlendis. Takið eftir stofnsérhljóðum fyrsta og síðasta bragliðs hverrar ljóðlínu.

Kyrrðar friðsæld finna
f
uglar næsta sumar
eftir að grænka vellir
yljar hjörtum sem tifa