Innrím

Þegar rímorð eru framar í ljóðlínum er talað um innrím. Þegar orð innan sömu ljóðlínu ríma er talað um þversett innrím. 

Eykur leik og alúð fann
eða gleði sanna
hreykin steikja kleinur kann
kærleiksmærin Anna

þversett innrím

Ef hins vegar rímorðin eru í mismunandi ljóðlínum er innrímið langsett

Yfir klungur ekur hann
ósköp
slunginn skratti.
Ástar
punga eta kann
alltof
þungur Matti.

Latur kútur laus við kraft,
leysir
hnúta snúna.
Matti
þrútinn hefur haft
hægðir
úti núna.

langsett innrím