Lengd endaríms

Ef orðin eru eitt atkvæði (stýfðir bragliðir) er talað um einrím eða karlrím.  

Minna rímorð mest á brjóst
miklar konur gera
það er öllum líka
ljóst
lítil karlar bera.

 einrím

Ef orðin eru tvö atkvæði er talað um tvírím eða kvenrím.

Því næst spurði frúna frétta
Fía sagði hitt og
þetta,
lýsti hverjir ljúg' og
pretta,
líka hverjir blóti
sletta.

tvírím

Ef orðin eru þrjú atkvæði er talað um þrírím eða veggjað rím.

Féll á bakið bölvaður                            
byltist um og vældi,
virtist vera
ölvaður
veikur flestu ældi.

þrírím

Ef einungis endingar lengri orða ríma er talað um flatrím. Það er fremur ljótt og ber að forðast.

Senn er tími sólbaða,
sumarblíðustundirn
ar,
bíða úti berbrjóst
a,
bestu hrundir fegurð
ar.

flatrím