Þorrablót Eflingar 2007 - Varðandi fyrripart


Í þessum fyrripart er hrynjandin með þeim hætti að þrjú atkvæði standa saman í hverri kveðu (áherslueiningu). Allar ljóðlínur eru fjórar kveður þar sem síðasta kveðan er stýfð niður í tvíkveðu. Rím er þversett þar sem lágkveðurnar ríma (2. og 4.) það er síðan í höndum botnara að ákveða hvort endarím skuli vera eður ei. Eru þá til sex aðferðir:

1. Ekkert rím á milli ljóðlína

Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
Betra nú veistu hér ekkert en eistu
og eflaust þau borðar án frekari orða

2. Hálfrím á milli ljóðlína

Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
Kemur með snótina karlinn sá ljóti
klámfenginn herra sem tár ’ennar þerrar

3. Órímað á milli frumlína og hálfrímað milli síðlína

Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
Höfum hér gaman og sjáumst því saman
í sumum þó kurri og reiðir þeir urri

4. Órímað á milli frumlína og alrímað milli síðlína

Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
Vökva ég barka og eflaust mun arka
til átaka vorra ef skerst hér til orra.

5. Hálfrímað á milli frumlína og alrímað milli síðlína

Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
Þrammið og njótið nú þorra á blótið
þrátta til vorra ef skerst hér til orra.

6. Alrím á milli ljóðlína
   
Allir nú mæti með aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
þó ekki ég þræti þá eflaust ég mæti
til átaka vorra ef skerst hér til orra.

(Hér væri
gott að breyta fyrripartinum til að þetta smylli betur saman)

Allir með kæti og aldrað góðgæti
annan í þorra á blóti með Snorra
þó ekki ég þræti þá eflaust ég mæti
til átaka vorra ef skerst hér til orra.