|
Landnámsmenn
fluttu með sér hesta til Íslands.
Mjög líklega hafa þeir tekið með sér
bestu og harðgerðustu hestana úr stofni
sínum. Í margar aldir
blandaðist íslenski hesturinn ekki öðrum hestum
og hefur hann haldið hreinleik sínum eins og hann
gerir enn.
Það
sem einkennir íslenska hestinn er
einkum fjölbreytni í gangi
og litum, styrkur, hreysti
og góð lund. Hann
er óvenju sterkbyggður og þrautseigur,
gerir ekki miklar kröfur til fóðurs
og húsaskjóls en nær háum aldri
og hefur einstaklingsbundin persónuleika.
Hann er félagsvera og vill helst vera í húsi
eða á beit með öðrum hestum. Þetta
eru m.a. þættir sem hafa gert íslenska hestinn
eftirsóknarverðan víða
um heim.
Áður
fyrr var hesturinn notaður til bústarfa og ferðalaga
og kallaður þarfasti þjónninn.
Í dag er hestamennska áhugamál fjölda
fólks og margir njóta þess t.d. að ferðast
um landið á hestum. Hestamenn þurfa að
huga að mörgum þáttum, s.s. þjálfun,
umhirðu og öðru því
sem fylgir því að eiga hest. Margir hafa
líka starfa við tamningar,
hrossarækt og fleira er lítur að hestamennsku.
Margar
bækur hafa verið skrifaðar
um hesta og hestamennsku. Vísur
og sögur hafa verið sagðar í gegnum aldirnar
af bæði gæðingum og bikkjum. Í
dag er að finna margskonar efni á Netinu
um hesta og hestamennsku, eins og t.d. þennan
vef.
|