|
Þjálfun
Þegar byrjað er að þjálfa hestinn verður
að taka tillit til líkamlegs ástands hans. Það
er misjafnt fyrir hvað menn ætla að þjálfa
hestinn sinn. Er það til venjulegra útreiða,
langferðar
eða keppni? Enginn fer á
óþjálfuðum hesti í keppni,
eða í langferð, mikilvægt
er að bæði hestar og menn séu vel undirbúnir.
Ekki
er gott að leggja mikið á unga hesta og eldri hestar
þurfa að vera í þjálfun þegar
til átaka kemur. Uppbygging þjálfunar
er síðan í höndum knapans, sem hann skipuleggur
miðað við markmið. Í byrjun þarf
að byggja upp og styrkja vöðva hestsins. Gott er að
fara í stutta útreiðatúra, nota hæðótt
landslag til hjálpar, ekki alltaf fara sömu leiðina,
tilbreyting veitir meiri ánægju. Síðan
taka við ýmsar æfingar til að undirbúa
hestinn sem best undir fyrirhuguð markmið.
Bókin Á fákspori
Umhirða, þjálfun og keppni eftir Sigurbjörn
Bárðarson (Eiðfaxi, 1982) veitir góðar
upplýsingar um þjálfun. Sjá
einnig fleiri kennslubækur í bókalista.
Keppni
Margir hestamenn hafa gaman af að keppa á hestum sínum
og er það nú orðin íþróttagrein.
Hægt er að keppa í ýmsum greinum s.s.
gæðingakeppni, töltkeppni, skeiði og ískappreiðum
svo eitthvað sé nefnt. Ákveðnar reglur
gilda í hverri grein, sem knapar verða að kynna sér
og fara eftir. Hér má finna reglur um kappreiðar.
Hestamannamót
hafa verið vinsæl á Íslandi. Stærstu
mótin eru nú
Landsmót, sem haldin eru annað hvert ár og
fjórðungsmót
eru haldin í landsfjórðungunum annað hvert
ár líka, en ekki sama ár og landsmót
eru. Síðan er fjöldinn allur af svæðismótum,
sem hin ýmsu hestamannafélög halda á hverju
ári.
Á vetrum eru stundaðar ískappreiðar.
Þá er riðið á ísalögðum
tjörnum eða vötnum en einnig hafa skautahallir verið
notaðar.
|