|
Vefur
þessi er unnin af Birni
Sigurðssyni og Herdísi
Brynjólfsdóttur. Vinna við vefinn hófst
vorið 2001 og er hann verkefni við framhaldsdeild Kennaraháskóla
Íslands. Ráðgert er að halda áfram
vinnu við hann. Allar athugasemdir og ábendingar
eru vel þegnar.
Efnið
á vefnum er að mestu samið af Birni og Herdísi
sem bæði hafa lengi haft hestamennsku að áhugamáli,
stundað tamningar og kennt á reiðnámskeiðum
fyrir börn. Stuðst var við eigin þekkingu
og heimildir úr ýmsum áttum (sjá bókalista
hér fyrir neðan). Hluti af efninu er fenginn frá
þeim Ragnhildi Helgadóttur og Örnu Kristjánsdóttur
(s.s. um sögu hestsins og sjúkdóma). Allar
ljósmyndir á vefnum eru í eigu Herdísar
og Björns.
Markmiðið
með vefnum er m.a. að veita grunnþekkingu á:
- Sögu
og sérstöðu íslenska hestsins,
- reiðtygjum,
- heitum
líkamsparta hestsins,
- umhirðu
og umgengni við hesta,
- hestsævinni,
- sjúkdómum,
- hestalitum
og nöfnum,
- gangtegundum,
- ástetu
og taumhaldi,
- þjálfun,
útreiðum og hestaferðum.
|