Kennsluefni á vef.

 

eftir
Herdísi Brynjólfsdóttur

 

Kynning | Verkefni | Bjargir | Ferli| Mat | Niđurstađa

Kynning

Verið er að skipuleggja mikla sýningu á kóngulóm í Grasagarðinum í Reykjavík.
Hugmyndin er að fá sem flestar tegundir kóngulóa í heiminum á þessa sýningu, líka þær allra hættulegustu.

Leitað er eftir aðstoð þinni við undirbúning, uppsetningu og vinnu við sýninguna. Setja upp búr, þar sem umhverfið er sem líkast því sem gerist í náttúrunni. Einnig þarf að afla fæðu fyrir hverja tegund, meðan dýrin dvelja á Íslandi.

Mjög mikilvægt er að örugg varsla sé með dýrunum, þau mega ekki sleppa út og ekki er ætlast til að sýningargestir snerti þau.

 

Verkefni

Þú þarft að byrja á því að afla þér upplýsinga um kóngulær. Farðu í bjargrlistann og lestu allt sem þú getur um þessi dýr.

1. verkefni: Kynning sýningarinnar. Útskýrðu á skýran og einfaldan hátt lífsferil áttfætla. Útbúa þarf stór sýningarplaköt.

2. verkefni: Myndasýning. Útprentanir og teikningar. Hverri mynd fylgi nafn. Einnig verði skjámyndasýning.

3. verkefni: Upplestur. Segja frá ýmsum fréttum af kóngulóm. Má vera af skjá.

4. verkefni: Flokkun. Hvaða kóngulær eru meinlausar og hverjar skaðlegar fyrir menn.

Upp

BjargirNáttúruverndarráð

Aflaðu upplýsinga um áttfætlur.

Um kóngulær
Þegar fólk finnur kónguló kemur oft fyrir að því hrylli við, renni kalt vatn milli skinns og hörunds. Sumir reyna að drepa hana, en aðrir telja það ógæfumerki. Enn aðrir hlaupa í burtu með tilheyrandi hljóðum, en kóngulóin er bara lítið dýr og ætlaði ekki að gera nokkrum mein.
Mjög fáar kóngulær eru hættulegar mönnum og engar á Íslandi.

Skoðaðu kóngulær með stækkunargleri og í víðsjá og reyndu að sjá að þetta eru einungis lítil dýr sem hafa sitt hlutverk hér á jörð. Vonandi verður vinna þín til þess að færa þér reynslu og ánægju.

Á þessum vef finnur þú ýmsar upplýsingar. Leitaðu að áttfætlum. http://www.fsu.is/vefir/liffraedi/nat103/vor01/verkefni6/eyvi/flokkun.html

 

Margir halda að kóngulær séu skordýr, en þær eru áttfætlur.
http://www.ismennt.is/not/hrefnabj/html/kongulo.htm

af vef Óskars Ólafssonar
Af vef Óskars Ólafssonar.

Á þessum vef má finna fleiri góðar myndir af kóngulóm.
Köngulær eru ljótustu dýr í heimi.
Elsta könguló í heimi var Tarantúla hún varð 25 ára.
http://bes.ismennt.is/fis/Project/HaettulegDyr/kongular.htm

 

 

Þessa mynd er að finna á Vísindavefnum.

Minnsta kónguló sem fundist hefur er 0,43 mm karldýr af tegundinni Patu marplesi. Hún fannst 1956 á Vestur-Samóaeyjum.

Heimild: Heimsmetabók Guinness. Ritstjóri: Örnólfur Thorlacius. Örn og Örlygur 1985.

 

Köngulær. 1993. Reykjavík, Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands.

Gamli Nói.
Hvað segir blaðið Gamli Nói um köngulær?

Köngulóin er ótrúleg skepna. Margir kannast eflaust við orðatiltækið: Að vera iðin eins og könguló.

Heimilisblaðið frá 1951 hefur að geyma merkilegar frásagnir af kóngulóm í þætti sem kallast "í skuggsjánni", og hefur verið við lýði í blaðinu frá 1912, en þá kemur út fyrsta tölublað og er prentað í Prentsmiðju Suðurlands á Eyrarbakka. Útgefandi er í upphafi Jón Helgason prentari. Hann er enn útgefandi og ábyrgðarmaður 1951, en þá er blaðið prentað í Prentsmiðju Jóns Helgasonar Bergstaðastræti 27 í Reykjavík. -----------------


Þessa mynd er að finna á Vísindavefnum.

Hversu lengi hafa köngulær verið til á jörðinni? Hvað eru til margar tegundir og ættir í heiminum og á Íslandi?

Skoðið svarið og einnig við næstu spurningu:



Er það rétt að til sé köngulóartegund á Íslandi sem getur bitið í gegnum skinn á manni?
Svar á Vísindavefnum:

 

 

Upp

Ferli

Þú byrjar á því að velja þér verkefni. Hvort þú vilt vinna með öðrum eða vera einn með verkefnið.
Láttu kennarann vita með tölvupósti.

Verklegar æfingar geta verið í skólanum en einnig heima.
Munið að taka myndir af þeim kóngulóm sem þið finnið.

Einnig má gera líkön úr leir eða pappamassa.

Útbúðu vef um kóngulær og hafðu a.m.k. eina sjálfgerða mynd með.

Búr og umhverfi kóngulónna þarf að vera sem eðlilegast.

Upp

Mat
Aðallega verður gefin einkunn fyrir afrakstur sýningarinnar, en að sjálfsögðu verður tekið tillit til vinnubragða meðan á undirbúningi stóð.
Einstaklingurinn verður metinn og tekið tillit til þess hvernig honum gengur að vinna í hóp.

Sýningin á að byrja með látbragðssöng: Vimsi, vimsi kónguló....
Síðan verður fræðileg kynning og einnig söguleg.
Að öðru leyti verður metið það sem er á sýningunni.

Skýrsla eða verklegur undirbúningur á skoðun og greiningu kóngulóa vegur 20%.
Meta hvort nemandi vinnur sjálfstætt.

Upp

 

Niđurstađa

Sýning fyrir foreldra.
Nemendur eiga að hafa lært nokkuð vel um kóngulær.

Leitað upplýsinga á vef og skipst á tölvupósti.
Ætlast er til að unnið verði með stafræna myndavél, en einnig víðsjár og önnur tæki líffræðistofunnar.

Nemendur læra framsögn og tjáningu. Taka tillit til annarra og vinna saman að settu markmiði.

Myndvinnsla og tónmennt koma inn í þetta verkefni.

Gert verður grein fyrir verkefninu á vefsíðu skólans.

 

Aflaðu frekari upplýsinga um kóngulær:

 

 

Upp

Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.

© Herdís Brynjólfsdóttir
Síðast uppfært 20. júlí, 2001.