Að velja bakgrunn glærunnar
Þegar velja á bakgrunn glæru er smellt á þennan takka
Þá birtist þessi valmynd:
Í vinstri glugganum er í þessu tilfelli valinn bakgrunnur sem heitir "Angels" og í hægri glugganum sést hvernig sá bakgrunnur lítur út. M.ö.o. ef valið er heiti einhvers bakgrunns er valið birtist útlit hans í hægri glugganum.
Þegar bakgrunnur hefur verið valinn er smellt á "Apply" og bakgrunnurinn birtist á öllum glærum sýningarinnar.
Bakgrunn glærunnar er ýmist hægt að velja strax þegar byrjað er að vinna í glærugerðinni, eða einhvers staðar í miðju vinnuferlinu. Þá er hægt að breyta um bakgrunn hvenær sem er í hvaða glæru sem er og sami bakgrunnur fer á allar glærurnar.
3. maí 2000