Glærusýning
Til að setja af stað glærusýningu þarf fyrsta glæran í sýningunni að vera valin og svo er smellt á þennan takka
![]()
Nú fer af stað glærusýning á skjánum; glæran fyllir upp í skjáinn.
Til að fá inn næstu glæru er ýmist smellt með músinni (bendillinn sést ekki og getur verið hvar sem er) eða slegið á "enter"-takkann á takkaborðinu.
Til að fara aftur á bak, eða velja einhverja ákveðna glæru er farið með músina neðst í vinstra hornið. Þá birtist ör sem þarf að smella á og þessi valmynd birtist:
Þessa valmynd er líka hægt að fá með því að hægri smella með músinni.
Hér er hægt að skoða næstu glæru, fyrri glæru eða velja ákveðna glæru með því að fara í "Go" eins og valið er á þessari valmynd.
Hægt er að láta texta glæranna og myndir birtast á skjánum með ýmsum hreyfingum s.s. fljúga inn frá vinstri eða hægri, detta niður orð fyrir orð... eller hvad som helst!
Til að setja inn hreyfingar þarf fyrst að velja viðkomandi glæru.
Þá þarf að smella á þennan hnapp
![]()
Nú birtist þessi litli gluggi:
![]()
Ef músinni er rennt yfir þessa hnappa þá birtist skýring á hvers konar hreyfingar verða á textanum. "ABC" á hjólum merkir t.d. að textinn (hver málsgrein) kemur "keyrandi" inn frá hægri.
Einnig er hægt að velja hreyfingar á textann með því að fara í "Slide Show" - "Preset Animation" og velja svo viðeigandi hreyfingar. Sjá valmyndina hér að neðan.
Skemmtilegur möguleiki í glærusýningum er að láta þær ganga sjálfkrafa; einmitt upplagt sem kynning á bókasafninu!
Þá er farið í sömu valmynd og myndin hér að ofan sýnir þ.e. "Slide Show" og nú valið "Rehearse Timings" þ.e. æfa tímasetningu. Nú byrjar glærusýning og þessi litli gluggi birtist í einu horninu:
![]()
Hér má sjá kunnuglega takka. Örin táknar "spila" , tvö strik tákna "pása" og Repeat endurtekning.
Glærum og texta er fleytt á skjáinn (með músa-smellu eða "enter"-takka) á þeim hraða sem þú heldur að notandinn þurfi til að lesa og melta upplýsingarnar. Að því loknu er þessum glugga lokað (smellt í X efst í hægra horni) og þá birtist þetta:
Hér getur þú vistað tímann á glærusýningunni eða ekki. Ef þú vistar tímann og ferð svo í glærusýningu þá rennur sýningin sjálfkrafa yfir skjáinn og notandinn þarf ekkert annað að gera en að nota augun!
Hægt er að láta svona sýningar ganga endalaust; aftur og aftur. Til þess þarf að fara í "Slide Show" og "Set up Show". Þá birtist þessi valmynd:
![]()
Hér þarf að haka við eins og sýnt er á myndinni, þ.e. "Browsed at a kiosk" og "Using timings, if present" (neðst).
Einnig má sjá aðrar stillingar sem hægt er að leika sér með.
Og nú er bara að möndla eitthvað skemmtilegt fyrir safngesti!
5. maí 2000