Að setja inn myndir


Einfaldasta leiðin við að setja mynd inn á glæru er að velja myndaglæru
(sjá "Uppbygging glæru")

Myndaglæran hefur myndina ýmist vinstra megin eða hægra megin

Ef tvísmellt er inn í rammanum þar sem setja á mynd birtist þessi valmynd:

Hér er hægt að velja þá mynd sem fýsileg þykir, annað hvort með því að skruna niður "rennilásinn", eða velja einhvern flokk mynda s.s. "People at work" (fólk í vinnu).

Myndin er valin með því að smella á hana og smella svo á "Insert" takkann.

Taktu eftir takkanum neðst í hægra horninu þar sem bendillinn er. Þar er möguleiki á að sækja sér myndir af netinu (getur orðið svolítið tyrfið!)

Einnig er hægt að fara þessa leið við að setja inn myndir:

Valið er "Insert - Picture - Clip Art" (sem er valmyndin hér að ofan) eða "From File" sem er þá mynd sem þú átt einhvers staðar í tölvutæku formi.

Það er alltaf hægt að setja myndir inn á glærur, jafnvel þó myndaglæra hafi ekki verið valin og þá er einmitt þessi leið farin. Músin er notuð til að staðsetja myndina og hægt er að minnka og stækka og tegja og toga með því að fara í ramma myndarinnar.

 

Þessi valmynd er einnig hægt að nota þegar setja á inn gröf eða línurit (sjá "Chart" neðarlega á valseðlinum)

Til baka á efnisyfirlit


© Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir

2. maí 2000