Helstu takkar og virkni þeirra


Hér að ofan eru efstu takkastikurnar í PowerPoint eins og þær líta út í heild sinni.
Margir þekkja þarna takka sem einnig eru notaðir í öðrum Microsoft forritum s.s. Word.
Hér verða því aðeins útskýrðir þeir takkar sem eru sérstakir fyrir skipanir PowerPoint.
Lengst til hægri á mið-stikunni eru 4 takkar sérstakir fyrir skipanir í PowerPoint.

Ný glæra.

Breyta uppbyggingu glærunnar (t.d. úr glæru með skipuriti í glæru með súluriti)

Velja eða breyta bakgrunni glærunnar (marmara- eða blómabakgrunnur?)

Útlit bakgrunns í svart hvítu (t.d. ef prenta á út og ekki á litaprentara)

Glugginn þar sem stendur 100% vísar til þess að glæran sem þú ert að vinna í er 100% af þeirri stærð sem glæran lítur út í glærusýningu.
 

Lengst til hægri á neðstu takkastikunni eru einnig nokkrir nýjir takkar.

Vinstri takkinn eykur bilið milli málsgreina; sá hægri minnkar bilið.

Vinstri takkinn stækkar letrið; hægri takkinn minnkar það.

Vinstri takkinn ýtir textanum til vinstri; hægri takkinn ýtir til hægri (inndráttur).

Þessi takki opnar lítill glugga þar sem hægt er að velja með hvaða hætti textinn birtist í glærusýningu; hvort málsgreinar fljúga inn frá hægri eða vinstri, orð detta niður hvert fyrir sig o.s.frv.

Þetta er mikilvæg takkastika neðarlega vinstra megin á skjánum.

Þessi takki er sjálfgefinn og sýnir útlit og texta einnar glæru í einu. Hér er hægt að vinna með texta og útlit einnar glæru í einu.

Þessi takki birtir texta en ekki útlit allra glæranna í einu. Hér er hægt að lesa allan textann og vinna með hann.

Þessi takki birtir yfirlit yfir útlit og uppröðun allra glæranna. Hér er hægt að setja bendilinn milli glæra og bæta inn nýrri glæru. Einnig er hægt breyta uppröðun glæranna með því að smella með músinni á glæru, halda músartakkanum niðri og færa glæruna þangað sem hún á að fara. Þá er hægt að tvísmella á glæru til að fá hana upp á skjáinn og vinna með hana.

Þessi takki birtir einstaka glæru með textaboxi fyrir neðan, þar sem hægt er að setja inn punkta fyrir fyrirlesarann. Glósurnar ásamt glærunni er hægt að prenta út sérstaklega.

Þessi takki birtir glærurnar í glærusýningu (glæran fyllir upp í skjáinn), með öllum þeim hreyfingum og útliti sem sett hefur verið inn.

Til baka á efnisyfirlit

 

© Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir

2. maí 2000