Að velja uppbyggingu glærunnar
Þetta er næsta valmynd sem birtist þegar valið hefur verið Blank presentation
- Þessi valmynd birtist einnig alltaf þegar setja á inn nýja glæru, þ.e. þegar þessi takki
er notaður.
Hér er hægt að velja hvernig glæran á að vera uppbyggð, hvort á henni er fyrirsögn (eins og valið er á myndinni hér að ofan) texti í stikkorðum, súlurit, skipurit, texti með mynd ...
Athugið að hægt er að velja um fleiri uppsetningar en sjást á þessari mynd, með því að skruna niður "rennilásinn".
Til að velja uppbyggingu er smellt á það sem hentar í hvert skipti og síðan smellt á OK.
Hvað næst? Unnið með glæruna
2. maí 2000