Að prenta út glærur
Útprentun úr PowerPoint er kapítluli út af fyrir sig, því margir möguleikar eru á útprentun.
Ef farið er í "File - Print" þá kemur upp þessi valmynd:
Hér neðst sést að hægt er að prenta út einstakar heilar glærur (þar sem glæran fyllir upp í A4 blað) ýmist með eða án hreyfinga (Slides with/without animations)
Þá er hægt að prenta út dreifildi (Handouts) með mismörgum glærum á hverju blaði.
Einnig er hægt að prenta út eina glæru á hvert blað með glósum (Notes Pages), sem er hentugt fyrir fyrirlesara. (Þetta er gert þegar notaður hefur verið þessi takki
glósutakkinn)
Möguleiki sem ekki sést í þessum glugga er að prenta út eingöngu texta glæranna, en hvorki útlit né uppbygging sést.
5. maí 2000