Rifjaðu
upp með nemendum það sem þeir hafa lært
um eldgos. Í umræðum er gott að koma með
eftirfarandi grunnupplýsingar:
Að miðja jarðar er kjarni úr heitum seigfljótandi
vökva úr járni og nikkel.
Hiti frá kjarna jarðarinnar getur brotist upp á
yfirborðið í gegnum sprungu í flekunum eða
að hitinn getur “þrýsts út um”
miðjuna á flekunum, og losað þrýsting
og hita upp á yfirborðið.
Kynntu
tilraunina fyrir nemendum en markmiðið með henni er að
aðstoða nemendur í að sjá
fyrir sér hvernig alvöru eldgos er.
Efni
og áhöld
|
Leir, saltdeig eða mold
Lítil tóm gosplastflaska
Steikingarpanna
Rauður matarlitur
Mýkingarefni
Tvær msk. lyftiduft
Trekt
Edik
|
|
Fyrirmæli
Bekknum er skipt í hópa, og efnum og áhöldum
dreift á hópana.
Nemendur eiga að setja
gosflöskuna á steikarpönnuna,
og móta leirinn í fjall í
kringum flöskuna. Passa
þarf að ekkert fari ofan í flöskustútinn.
|
|
Nemendur eiga að fylla flöskuna með heitu vatni
og blanda rauða matarlitnum við.
|
|
Næst eiga nemendur að
bæta 6 dropum af mýkingarefni og 2 msk
af lyftiduftinu og edikinu
í flöskuna.
|
|
Nú ættu nemendur að taka eftir rauðri froðublöndu
rísa yfir topp eldfjallsins sem flýtur svo niður
eftir hlíðunum.
|
|
Punktar
Útskýrið
fyrir nemendum hvernig módelið þeirra líkist
eldfjalli, eða skorið á þau að gera athugun
til að koma fram með eigin útskýringar.
Einnig getur kennarinn haft sýnikennslu og gert tilraunina
sjálfur.