Kandadíska skólanetið
http://www.schoolnet.ca/home/e/index.html
er frá 1993 og er ætlað það hlutverk að
hjálpa skólum og almenningsbókasöfnum í
Kanada að komast í samband við alnetið og nýta
upplýsingatæknina í starfi sínu. Með því
að fá fræðsluyfirvöld, bókasafnsyfirvöld,
samtök kennara og bókasafnsfræðinga og einkageirann
til samstarfs tókst Kanadíska skólanetinu að gera
Kanada fyrsta landið í heimi til að tengja skóla
og bókasöfn við alnetið30. mars 1999. Ætlunin
er að Kanada verði leiðandi í þessum málum
á heimsvísu.
Skólanetið mun halda áfram að starfa með
héruðunum og einkageiranum til þess að koma sambandi
við kennslustofurnar fyrir 31. mars 2001 þannig að allir
kanadiskir nemendur geti nýtt sér alnetið. |
Markmiðið með netinu er
1. að fá fólk til að mennta sig og útskrifa
nemendur með hæfni til að nýta sér upplýsingatækni,
sem atvinnutækifæri nútímans byggjast mörg
á.
2. að auka námsmöguleika og árangur í
skólum um þvert og endilangt Kanada með því
að opna nemendum og kennurum aðgang að innlendum og erlendum
(resources) gagnabönkum. |
| Að netinu standa menntamálaráðuneyti,
samtök framhaldsskóla og Tele-Learning-NCE. Svo eru ótal
styrktaraðilar að einstaka öngum, t.d. fylkjaskólanetum. |
Hægt er að fara tvær leiðir inn á netið.
Annars vegar að velja sér tungumál ensku/frönsku
og finna upplýsingar um allt milli himins og jarðar sem gæti
vakið áhuga eða nauðsynlegt er fyrir skólafólk
að hafa aðgang að og hins vegar að velja "connecting Canadians"
og fræðast um vefinn og fá ýmsar hagnýtar
upplýsingar. Þetta svæði er fyrir heimamenn.
Þetta er áhugaverður og metnaðargjafn vefur, enda
stefna þeir, eins og áður kom fram á að verða
leiðandi í tölvu- og upplýsingatækni í
heiminum. . |
Mér finnst dálítið óþægilegt
hvað letur á krækjum er smátt |
|
Til baka
| Stemnet http://www.stemnet.nf.ca/
er sá hluti kanadíska skólanetsins sem ætlaður
er Nýfundnalandi og Labrador. |
| Markmiðið með netinu er að skapa gæða
menntunartækifæri, aðgang að alnetinu og aðgang
að gagnabönkum fyrir grunnskólanemendur og kennara í
Nýfundnalandi og Labrador með því að taka forystu
í gerð menntaneta og ná góðu sambandi við
stuðnings- og styrktaraðila á svæðinu, í
landinu og um allan heim. |
| Stuðningsaðilar eru menntamálaráðuneyti,
skólar og ýmiss fyrirtæki. |
| Eins og á öðrum skólavefum eru krækjurnar
óteljandi. Ég fann m.a. kennsluáætlanir frá
kennurum, skemmtilegar stærðfræðiþrautir og svo
mætti lengi telja. Gullmolinn er svo ógrynni klassiskra bókmennta,
sem höfundaréttur er ekki lengur á. |
| Áhugavert er einnig að lesa um áætlanir þeirra
í sambandi við foreldrasamstarf, sem vert væri að
líta betur á. |
|
Til baka
Efst á síðu
| Pavilion Internet http://www.schoolnet.co.uk/
hefur safnað saman upplýsingum á einn stað, SchoolNet,
til þess að gefa nemendum tækifæri til þess
nýta upplýsingatækni í hópastarfi. Skólar
hafa ótakmarkað pláss á netinu fyrir upplýsingar
og verkefni nemenda. Af skólanetinu kemst maður inn á
þessar síður og það gerir skólunum fært
að hafa samband við núverandi og tilvonandi foreldra og
nemendur, sem eru tengdir alnetinu heima eða verða það
fljótlega. Nemendur geta fundið upplýsingar um verkefni
sem þeir eru að vinna að á netinu. Þeir geta
líka haft tölvusamskipti við aðra skóla óháð
staðsetningu þeirra með tölvupósti eða í
gegnum vefsíður. Vonast er eftir því að í
framtíðinni verði þarna vettvangur fyrir nemendur,
kennara og foreldra. |
| Krækjurnar eru stórkostlegar – bókstaflega allt
sem hugurinn girnist. |
|
Til baka
Efst á síðu
| Sérkennsluhluti
kanadíska skólanetsins http://www.schoolnet.ca/sne/býður
upplýsingar handa foreldrum, kennurum, skólum, öðru
fagfólki, einstaklingum, hópum og félagasamtökum
sem hafa áhuga á sérkennslu. |
Þarna er mikill fjársjóður upplýsinga
fyrir þá sem hafa áhuga á sérkennslu
og upplýsingar gerðar aðgengilegar.
Í herbergi 13 er að finna lista yfir styrktaraðila,
en að auki ógrynni upplýsinga, greina o.fl. o.fl |
|
Til baka
Efst á síðu
| Norska skólanetið
http://skolenettet.nls.no/
var opnað 15. oktober 1996 og er ætlað kennurum,
starfsmönnum skólanna, nemendum, foreldrum og öðru
áhugafólki.Það er hluti af Fræðslumiðstöð
og IT í norskri menntun 1996-9. |
Sérstakan áhuga minn vöktu blöðin Ungdomsavisa
og Klikk.
Undir Umræðum er að finna ýmislegt áhugavert.
Þar eru svæði til umræðna fyrir, foreldra, kennarar
og nemendur. Ég rakst m.a. á umræður um það
hvað kennarar geta gert, þegar nemendur prenta út stíla
sem þeir finna á netinu. |
|
Til baka
Efst á síðu
| Suður-afríska
skólanetinu
http://www.school.za/ er ætlað það
hlutverk að þróa og breiða út notkun alnetsins
í skólum í S-Afríku |
SchoolNet SA reynir að hjálpa kennurum og nemendur við
að breyta menntuninni með aðstoð upplýsingatækninnar
með því að standa að og þróa samstöðu
og bjóða fram sérfræðiþekkingu á
ýmsum sviðum svo sem
Tölvu- og upplýsingatækni.
Lífsleikni.
Námskrárgerð. |
| Hjá SchoolNet vilja menn takast á við það
að breyta menntakerfinu í S-Afríku frá iðnvæddu
módeli í módel sem byggir á þekkingu
og auka þannig samkeppnismöguleika S-Afríku í
heiminum. |
|
Til baka
Efst á síðu
| Tesco SchoolNet 2000
http://www.tesco.schoolnet2000.com/welcome_p.html
er stærsta og að eigin sögn mest spennandi menntanet sem
nokkurn tíma hefur verið til fyrir breska skóla. Hægt
er að ferðast um það með leiðsögn eða
nota krækjurnar á síðunni. Þá er hægt
að skrá skóla beint á netinu. |
Frá því í september 1998 hafa þúsundir
skólabarna á öllum aldri unnið í skólanum
og heima um allt Bretland að verkefnum sem "Tesco SchoolNet 2000 Investigators"
og lært um lífið í Bretlandi nú og áður
fyrr og hvernig þau sjá fyrir sér lífið
á nýrri öld.
Nemendur taka þátt í spennandi verkefnum, sem gera
sögu, landafræði og önnur fög lifandi í
þeirra heimahögum. Þau læra með því
að skoða og rannsaka og segja öllum heiminum með eigin
orðum frá því sem þau hafa lært á
heimasíðum menntanetsins. Aðgangur að netinu er ókeypis
fyrir skóla í Bretlandi. |
| Tesco styrkir þetta framtak, auk þess sem það
styrkir ýmsa aðra þætti skólakerfisins |
| Á síðum Tesco SchoolNet 2000 eru ýmis verkefni
eftir börn auk óhemjumikilla upplýsinga sem hægt
er að nýta til kennslu og náms, en til þess að
taka þátt í verkefnum og leggja eitthvað til málanna
þarf að skrá sig. |
|