LJÓÐ BJÖRGVINS:
Sumarið 1986;
Hvar ertu sól?
Á
veröndinni ég sit
Það er regn úti
Og ferskur gróðurilmur
í loftinu.
Einstaka fuglakvak
klyfur kyrrðina.
Í gegnum birkið í þoku
sé ég flatneskju
langt til suðurs.
Lækjarniðurinn í hlíðinni
hljómar sem tónverk
og undirstrikar, hvar ég er.
Fólkið í Birkihlíð
horfir út um gluggann
og spyr:
Hvar ertu sól?