LJÓÐ ÓLAFS:
[Töfratónar][Það
er sumar]
Töfratónar
Vorið, vorið bræðir burtu sjóinn.
Bráðnar, hlanar, nú er þiður mars.
Vorið, vorið farfuglar í apríl.
Okkar lokka kartöflur í maí.
Sauðaburður á túnum.
Fjósabaul í kúnum.
Fræ í beðum brúnum,
blöðin mynda þá.
:,:Síðan loka skólar,
standa hljóðir stólar.
Geislagleði sólar,
glampar börnum frá:,:
Vor, vor, vor, vor.
Vakna blessuð blómin smá.
Það er sumar
Nú brosa börn í sumarsól
því borgin skrýðist blómakjól,
er ver við grösin græn.
Mér tjarnarspegill segir frá
hvar synda andabörnin smá,
og svanahjónin væn.
Það er sumar, sumar í dag
Á morgun fer ég upp í sveit.
Það eru bustnar kýr á beit,
en bóndinn túnið slær.
Í stoði hoppa folöld spræk.
Þau stökkva yfir lítinn læk.
Þar lifa síli glær.
Það er sumar, sumar í dag
Svo tjöldum við og steikjum mat,
á stærðar grilli, kúffult fat.
Og fórum glóð í sanu og sund.
Við syndum góða stund.
Um kvöldið detta regndropar.
Ég svíf á draumafund.
Það er sumar, sumar í dag.
Ólafur B. Ólafsson
(Ljóð úr námsbók hans fyrir grunnskólann Töfratónum)