LJÓÐ ÞÓRIS:
26.03.2001
Ættfræðin
Í grúskið mitt ég gjarnan
tíma tek
og tapa við það oft af stúkufundum,
því ættfræðin er ærið tímafrek-
en æsilega spennandi á stundum!
Ættfræðinnar
innstu rök
erfitt er að kanna
af því losti og lausatök
er leikur sumra manna.
Besti vinur Björgvin minn
batni hjá þér hagurinn.
Listin blómstri og blessist þér.
Berist til þínn sú ósk frá mér.
Undrafljótur Óli er
að yrkja stökur fínar.
Alltaf hann af okkur ber
með andans rispur sínar.