Augu skordýra

Flest fullorðin skordýr hafa samsett augu. Þetta eru þúsundir örsmárra smáaugna og hvert þeirra sér örlítinn hluta af sjónsviðinu. Heilinn tekur svo við öllum þessum smámyndum og dýrið sér eins og mósaikmynd.
Smelltu á myndina
Galdrafluga, er gjarnan í görðum og þar sem hún finnur girnilegar laufhrúgur.
Mörg skordýr eru líka með þrjú lítil augu, depilaugu, í viðbót við samsettu augun. Þau eru oft fyrir ofan samsettu augun og vísindamenn telja að þau augu skynji fyrst og fremst birtu en sjái ekki myndir. Flugur geta séð útfjólubláan lit sem fólk sér ekki en skordýr sjá þó trúlega ekki eins skýrt og fólk miðað við sömu fjarlægð.
forsíða|útlit|skynjun|hár|augu|húð|myndbreyting