|
Flugurnar og blómin |
||
|
Hunangsfluguþerna
safnar næringarríkum frjókornum og sætum blómasafa og fer með heim í búið
sitt. Hún treður frjókornunum ofan í sérstakar körfur, gerðar úr hárum,
sem hún hefur á afturfótunum. Hún lepur upp blómasafann með munninum og
geymir hann í sérstökum hunangssekk í líkamanum. Með þetta fer hún heim
í búið sitt þar sem hún býr með fjölda annarra hunangsflugna.
|
||
| Á
myndinni er hunangsfluguþerna að safna fæðu. Frjókörfurnar á lærunum sjást og einnig frjóin sem hún ber í hárunum. (Bombus ..) |
![]() |
Um leið og flugan flýgur þannig á milli blómanna ber hún frjó úr einu blómi á frævu í öðru svo að blómin geta frjóvgast og borið fræ. |