Húð skordýra

Skordýr eru með harða og óteygjanlega húð eins og skurn. Vegna þess að húðin er ekki teygjanleg geta skordýr ekki vaxið jafnt og þétt heldur í rykkjum samfara hamskiptum og myndbreytingu. Flest fara þau í gegn um nokkur hamskipti á lífsferlinum t.d. hafa lirfur oft 3-4 hamskipti áður en þær svo púpa sig og myndbreytast í fullorðið dýr. Þegar skordýr eru orðin fullorðin vaxa þau ekki meir.
taðýfill
Taðýfill er bjalla sem verpir í hrossatað og kindaspörð á jörðu. Aphodius lapponum

Húð skordýra ver líkamann og takmarkar útgufun frá honum en er líka stoðgrind sem vöðvarnir eru festir við. Svo kölluð ytri stoðgrind.

(Við, eins og önnur hryggdýr, höfum innri stoðgrind, beinagrind sem heldur líkamanum uppi og vöðvar og vefir eru fastir við. Utan um leggst svo mjúk húð sem ver líkamann og getur tognað og stækkað.)

forsíða|útlit|skynjun|hár|augu|húð|myndbreyting