Myndbreyting

Úr örsmáum eggjum skordýra koma lirfur sem éta og stækka. Dag einn hættir lirfan að éta og um hana myndast hylki eða púpa og inni í púpunni breytir hún algjörlega um lögun, verður að fullorðnu dýri. Myndbreytingin getur tekið langan tíma.
Svona myndbreyting kallast fullkomin myndbreyting og verður hjá flestum skordýrum svo sem öllum fiðrildum, flugum og geitungum.
Hvað er ófullkomin myndbreyting?

Ygla Ertuygla, lirfa í grasi. Eftir að lirfan hefur étið nægju sína púpar hún sig og myndbreytist og út úr púpunni skríður fiðrildi ekki ósvipað því á mynd
Fullorðnu dýrin verpa eggjum og lirfurnar sem úr þeim koma eru gjörólík fullorðnu dýrunum. Fiðrildalirfa er t.d. lík ormi að lögun, er með bitmunn, er með stuttar gangvörtur, enga vængi og ekki með samsett augu. Fiðrildi er hins vegar með sograna í munni, mjóa fætur og líkama, fjóra vængi og tvö samsett augu.
forsíða|útlit|skynjun|hár|augu|húð|myndbreyting