| Brennu-Njálssaga (Njálssaga, Njála) | |||
|
Njála er mest og frægust allra Íslendingasagna. Höfundur hennar hefur stuðst við munnmælasagnir og eldri ritaðar heimildir en jafnframt stælt eldri sögur og notað þær í nýju samhengi. Í Njálu er miklu efni saman þjappað, sumar persónur ýktar og sumir atburðir reyfaralegir. |
![]() |
||
![]() |
Höfundur dáist að og ann sumu sögufólki sínu en hefur fyrirlitningu á öðru, og þar á milli er fjöldinn sem fær samúð hans eða andúð í misjöfnum skömmtum. | ||
|
En þó eru allir viðburðir rökvíslega undirbyggðir, stundum með löngum aðdraganda, og allar mannlýsingar eru skarpar, hinar dökku með nokkru ljósi en engin svo björt að hún skýrist ekki af einhverjum skuggum. Fáar sögur í samanlögðum bókmenntum heimsins eiga þvílíkan fjölda ljóslifandi einstaklinga, þvílíka fjölbreytni í lýsingum og þvílíka speki í boðskap. |
|||
| Snorra-Edda|Landnáma|útsaumuð myndasaga | |||