|
Að verjast með skordýrum |
||
|
Algengt
er að blaðlýs séu á trjám. Ef þær verða mjög margar geta þær skemmt trén.
Stundum lætur fólk eitra garðana sína til að drepa blaðlýsnar. En eitrið
gerir meira en að drepa blaðlýsnar. Köngulær, sníkjuvespur og fuglar geta
fækkað þeim dýrum sem menn eru að reyna að losna við. En köngulær og sníkjuvespur
drepast líka af eitri engu síður en blaðlýs og stór dýr eins og fuglar
verða veikir.
|
||
![]() |
|
![]() |
|
Maríuhæna
er bjalla og bjöllur eru skordýr rétt eins og t.d. járnsmiður.Maríuhænur
éta blaðlýs, bæði lirfan og fullorðna dýrið. Það er auðvitað miklu sniðugra
að fá sér bara fallegar maríuhænur til að éta blaðlýsnar heldur en að
eitra garðinn sinn því að smádýr eins og Þannig geta skordýr gert gagn
og það gera þau á marga aðra vegu. Í raun eru þau algjörlega lífsnauðsynleg
lífríki Jarðar og þá ekki síst fólki.
|
![]() |
![]() Þessi krabbakönguló bíður átekta og mun innan skamms stökkva á fluguna og éta hana. |