Útlit

Flest skordýr eru mjög smá miðuð við dýr eins og spendýr, fugla og fiska.
Þau smæstu eru að lengd aðeins brot úr sentimetra en þau stærstu 30-35 sentimetrar. Sum skordýr eru ákaflega skrautleg, marglit og mynstruð.

Íslensk skordýr eru heldur fábreytt hvað liti varðar. Kannski er það bara tilviljun en kannski ræðst það af stuttum lífsferli í köldu loftslagi.

Við slíkar aðstæður er felubúningur sérstaklega mikilvægur og nauðsynlegt að nýta orkuna vel sér til vaxtar og viðhalds og henni því ekki eytt í að skrýðast fjölbreyttum, litskrúðugum búningum.

 

forsíða|útlit|skynjun|hár|augu|húð|myndbreyting