Hafsteinn Karlsson
       Póstur Hafsteinn Dagbók Greinar Skólamál Tenglar
 
Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi, er fćddur 6. október 1956 á Helluvađi á Rangárvöllum.  Fimm ára gamall fluttist hann í Kópavog og átti fyrst heima austast í Kópavogi, rétt neđan viđ trönurnar.  Áriđ 1967 flutti fjölskyldan í nýtt hús í Hjallabrekku og ţar átti Hafsteinn heima ţar til hann fór sjálfur ađ búa.  Hafsteinn er kvćntur Ebbu Pálsdóttur, meinatćkni hjá Íslenskri erfđagreiningu.  Ţau eiga fjögur börn; Atla Pál nema í tölvunarfrćđi viđ Háskóla Íslands, kćrasta hans er Heidi Lupnaav, nemi í ensku viđ HÍ.  Ţau eiga eina litla stúlku, Önnu Petreu.   Steinunn nemi í KHÍ, Brynhildur stúdent og Hjalti Karl í 10. bekk Smára skóla.  Fjölskyldan býr í Selbrekku 19.

Menntun

Hafsteinn hóf skólagöngu í Kópavogsskóla og var ţar í 7 ára bekk.  Eftir ţađ gekk hann í Digranesskóla og síđan Víghólaskóla.  Hann var í fyrsta árgangi Menntaskólans í Kópavogi og tók stúdentspróf  1976.   Lauk BA-prófi í íslensku og sagnfrćđi frá Háskóla Íslands 1981.  Stundađi nám í uppeldis- og kennslufrćđi viđ Háskóla Íslands og fékk kennsluréttindi 1984.  Lauk fyrri hluta meistaraprófs í skólastjórnun viđ Kennaraháskóla Íslands 1998.

Störf

Á skólaárum vann Hafsteinn ýmis störf.  M.a. í timburverslun, prentsmiđju, járnsmiđju auk ţess sem hann greip viđ og viđ í sendibílaakstur.  Hafsteinn hóf kennslu í Ţinghólsskóla 1979 og kenndi ţar einn vetur.  Hefur síđan kennt viđ Digranesskóla, á Hvammstanga og Hellu.   Hafsteinn var  skólastjóri Villingaholtsskóla í Flóa 1987-1996, Selásskóla í Reykjavík 1996-2001 og er nú skólastjóri nýjasta skólans í Kópavogi, Salaskóla.  Hafsteinn hefur einnig veriđ stundakennari viđ Kennaraháskóla Íslands.    Hann hefur skrifađ handćkur fyrir kennara um móđurmálskennslu, upplýsingatćkni og jafnréttismál.  Á árunum 1984-1986 starfađi Hafsteinn í útideild í Kópavogi og viđ unglingaathvarf í Reykjavík.  

Félagsstörf

Hafsteinn var skáti á unglingsárum og sá ţá međ öđrum um rekstur Jötunheima, skátaskála á Hellisheiđi.  Í menntaskóla var hann forseti menningarfélags MK og  formađur nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi.  Hann var um tíma formađur Norrćna félagsins á Hvammstanga, var um árabil stjórnarmađur í Kennarafélagi Suđurlands og sat einnig í stjórn Skólastjórafélags Íslands.  Hafsteinn var formađur Samtaka fámennra skóla um nokkurra ára skeiđ, var í samninganefnd Kennarasambands Íslands og í ritnefnd Nýrra menntamála.  Ţá átti hann sćti í Karlanefnd Jafnréttisráđs á árunum 1996-1999.  Undanfarin ár hefur Hafsteinn setiđ í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi.