lokarit5.gif (4198 bytes) internet3.gif (3729 bytes)
Ágrip ritgerðar
Formáliefnisyfir.gif (641 bytes)
kafli1.gif (774 bytes)
kafli2.gif (1086 bytes)
kafli3.gif (1202 bytes)
kafli4.gif (1323 bytes)
kalfi5.gif (938 bytes)kafli6.gif (758 bytes)heimild.gif (581 bytes)vidauki.gif (588 bytes)
formali6.gif (1011 bytes)

 

Þegar lagt var af stað með að smíða þessa lokaritgerð átti höfundur langt og gott samtal árla morguns við fyrrverandi samstarfsmann sinn hjá Íslenska menntanetinu. Var rætt um heima og geima Internetsins og fljótlega snerust umræðurnar um óreglu á Internetinu, þ.e.a.s. á Internetinu ríkir "kaós" í þeim skilningi að enginn á Internetið eða hefur leyfi til að setja lög sem taka til hegðunar eða framferðis í netheimum. Hvaða afl er það sem hefur áhrif á hegðan fólks á Internetinu, hvað ræður gerðum þess og hvaða áhrif hefur þetta skipulagsleysi á nýtingu Internetsins í skólastarfi? Höfundur lagði af stað með þessa hugmynd sína en fann að litlar undirtektir voru hjá viðmælendum hans, áhugi á þessum málum var lítill og erfitt að afla heimilda tengdum þessu efni. Þess vegna ákvað höfundur að skrifa almennt um notkun Internetsins í grunnskóla. Einnig tengjast mun fleiri vandamál nýtingu Internets í skólastarfi en óregla á Interneti og er nokkurra þeirra getið.

Höfundur er starfsmaður Íslenska menntanetsins og hefur starfað þar í hlutastarfi við notendaþjónustu frá því haustið 1996. Hefur það meðal annars verið hlutverk hans að aðstoða notendur í gegnum síma og vefsíður við ýmis vandamál. Höfundur hefur aflað sér nokkuð góðrar þekkingar á þeim hindrunum sem kennarar hafa mætt í notkun Internetsins og hefur hann hjálpað ýmsum til að yfirstíga tæknilegar hindranir.

Höfundur þakkar leiðsögukennara sínum, dr. Sólveigu Jakobsdóttir fyrir alla aðstoðina og einnig Ólafi Guðjónssyni, Þorbjörgu Þorsteinsdóttur og Jónu Pálsdóttur fyrir ábendingar og aðstoð.

vinstri.gif (560 bytes)
© Ingvar Ágúst Ingvarsson 1998