lokarit5.gif (4198 bytes) internet3.gif (3729 bytes)
agrip4.gif (545 bytes)
formali3.gif (568 bytes)efnisyfir.gif (641 bytes)
kafli1.gif (774 bytes)
kafli2.gif (1086 bytes)
kafli3.gif (1202 bytes)
kafli4.gif (1323 bytes)
Dæmi um verkefni6.kafli Lokaorðheimild.gif (581 bytes)vidauki.gif (588 bytes)
Lokaorð ritgerðar

 

Nú þegar komið er að leiðarlokum þessarar ferðar ef svo er hægt að kalla lokaritgerð þá er við hæfi að líta til baka. Síðan að höfundur hóf heimildaleit og byrjaði að skrifa hefur margt gerst sem tengist Internetinu. Mjög örar framfarir á tölvu- og fjarskiptasviðinu hafa leitt til þess að tenging við Internetið verður æ hraðvirkari og kostnaður við tenginar lækkar. Stjórnvöld hafa markað sér skýra stefnu er lýtur að Internetinu í skólastarfi og stofnað nýtt námssvið er kallast upplýsinga- og tæknimennt. 80-90% skóla á Íslandi eru tengdir Internetinu og fjöldi kennara sækir námskeið og er allur áhugi á Internetinu mjög mikill og mikil jákvæðni ríkir í garð þess. Kennarar eru nú í auknum mæli farnir að setja fram hugmyndir að verkefnum sem aðrir kennarar geta nýtt sér og er mikil gróska í þeim málum um þessar mundir.

Höfundur setti fram í ritgerðinni skilgreiningar á þjónustum Internetsins og eru þær: veraldarvefurinn, tölvuráðstefnur, tölvupóstur, spjallrásir og skráarflutningur. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri þjónustur eigi eftir að koma sem tengjast Internetinu enda er þróunin mjög hröð á þessu sviði. Höfundur rökstyður nýtingu Internetsins í skólastarfi og er helsti rökstuðningurinn að samfélagið muni njóta góðs af því vegna þess að námsárangur nemenda batnar, fordómar minnka, víðsýni eykst og almennur áhugi á námi og skólastarfi eykst. Engar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar sem gefa óyggjandi rök fyrir þessum fullyrðingum en óbirtar kannanir og ummæli kennara gefa þetta til kynna.  Helstu vandamál sem geta hindrað nýtingu í skólastarfi eru óregla á Internetinu, fjármagnsskortur, þekkingu kennara ábótavant, tímaskortur og að meta áreiðanleika upplýsinga á veraldarvefnum. Öll þessi vandamál eru til þess að leysa og hefur margt verið gert til að leiða okkur í áttina að lausn á þeim vandamálum.

Höfundur vonar að með nýrri aðalnámskrá, nýju námssviði og aukinni fræðslu af hendi þeirra stofnana sem sjá um að mennta kennara muni hlutur Internetsins í skólastarfi aukast.

vinstri.gif (560 bytes)
© Ingvar Ágúst Ingvarsson 1998