Félagslög SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi

I.

1. Heiti félagsins er: Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN). Aðsetur og varnarþing er á Akureyri. Félagssvæðið er Norðurland.

2. Markmið samtakanna er verndun náttúrulegs umhverfis á láði og legi, jurta- og dýralífs, og skynsamleg nýting náttúruauðlinda, landslýð til heilla í nútíð og framtíð.

3. Að ofangreindum markmiðum skal unnið í samræmi við gildandi lög og í samvinnu við alla sem hafa náttúruvernd á stefnuskrá sinni. Starfsemi samtakanna skal grundvallast á vísindalegri þekkingu, eftir því sem framast er unnt.

4. Verkefni samtakanna eru m.a. að:

a.             fræða um náttúruna og verndun hennar,

b.            stuðla að öflun þekkingar um sama efni með heimildasöfnun og rannsóknum,

c.             fylgjast með hvers konar hættum sem náttúrunni eru búnar af mannlegum inngripum og vekja athygli á þeim,

d.            stuðla að því að allir hafi sem best skilyrði til að umgangast náttúruna án þess að spilla henni,

e.             beita sér fyrir friðlýsingu staða, svæða, jurta eða dýra, einkum þeirra sem eru mikilvæg fyrir viðhald náttúrunnar eða auðlinda hennar, hafa sérstaka fræðilega þýðingu, eða teljast sérstaklega fögur eða athyglisverð, og

f.              vernda atvinnu- og menningarsögulegar minjar.

II.

5. Aðild að samtökunum er tvenns konar: bein aðild og styrktaraðild. Allir einstaklingar, sem vilja vinna að markmiðum samtakanna í þeim anda er að ofan greinir, geta gerst beinir aðilar (félagar). Einstaklingar, klúbbar, félög, félagasambönd, sveitarfélög, hlutafélög, fyrirtæki og stofnanir geta gerst styrktaraðilar samtakanna. Innganga nýrra félaga skal samþykkt á almennum félagsfundi eða aðalfundi. Félögum sem skulda árgjald þrjú ár í senn má vísa úr samtökunum.

6. Félagsgjald einstaklinga og lágmarksgjald styrktaraðila skal ákveða á aðalfundi til tveggja ára í senn.

III.

7. Aðalfundur fer með æðsta vald samtakanna. Hann skal halda að vorlagi annaðhvort ár, til skiptis í héruðum fjórðungsins. Stjórnin ákveður fundarstað og tíma og auglýsir fundinn bréflega eða með öðrum tryggum hætti, a.m.k. með viku fyrirvara, og undirbýr hann að öðru leyti (sbr. 8. grein) í samráði við félaga í viðkomandi héraði. Allir beinir aðilar (félagar) samtakanna eiga rétt til setu á aðalfundi, með fullum réttindum, og fulltrúum og stjórn er skylt að sækja fundinn. Styrktaraðilar mega senda áheyrnarfulltrúa á fundinn. Aðalfundurinn er löglegur sé löglega til hans boðað. Í sambandi við hann skal reynt að koma á fyrirlestrum, sýningum og skoðunarferðum.

8. Stjórn samtakanna skal skipuð fimm mönnum: formanni, sem kjörinn skal sérstaklega til tveggja ára og fjórum öðrum sem skipta með sér og formanni verkum. Skulu tveir kosnir á hverjum aðalfundi til fjögurra ára í senn. Fjárhagsár samtakanna er almanaksárið. Stjórnin fer með málefni samtakanna milli aðalfunda og undirbýr aðalfundi, m.a. með því að leggja fram:

a.             starfsskýrslu og endurskoðaða reikninga síðastliðins starfsárs, og

b.            tillögur um verkefni komandi starfsárs og fjárhagsáætlun.

Að öðru leyti skal hún vinna að málefnum samtakanna, eftir því sem kveðið er á í lögum.

IV.

9. Stjórninni er heimilt að skipa einn eða fleiri fulltrúa úr hverju hinna sex norðlensku héraða (sýslna). Skulu þeir vera stjórninni til ráðuneytis um sérmál viðkomandi héraðs eða umdæmis. Fulltrúar skulu afla sér sem ítarlegastra heimilda um náttúrufar og náttúruvernd héraða sinna og gefa um það skýrslu til stjórnarinnar.

10. Fulltrúum og öðrum aðilum samtakanna er heimilt að gangast fyrir stofnun sérstakra félagsdeilda í héruðunum, eða á öðrum tilteknum svæðum fjórðungsins, enda sníði deildirnar lög sín eftir lögum samtakanna. Allir aðilar samtakanna á viðkomandi svæði verða þá sjálfkrafa félagar í deildinni. Ennfremur kýs deildin þá fulltrúa viðkomandi héraðs (svæðis) á aðalfundi sínum.

V.

11. Samtökin skulu gefa út fréttabréf þar sem m.a. skal birta starfsskýrslu stjórnarinnar, samþykktir aðalfundar o.fl. Skal bréfið sent öllum aðilum samtakanna og styrktaraðilum, svo og öðrum skyldum félögum.

12. Ákvörðun um að leggja félagið niður skal samþykkja með 2/3 greiddra atkvæða á tveimur aðalfundum í röð. Verði samtökin lögð niður skulu eignir þeirra renna til helsta náttúrugripasafns (náttúrufræðistofnunar) í Norðlendingafjórðungi er verji þeim til rannsókna í þágu náttúruverndar.

13. Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi samtakanna og þarf til þess 2/3 gildra atkvæða löglegs aðalfundar.

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi SUNN á Akureyri 29. júní 1970 en breytingar gerðar á aðalfundunum 1972, 1978 og 2002.

Maí 1980/júní 2002


Efst Heimasíða Ingólfs Ásgeirs Jóhannessonar

Starfsskýrsla 2002–2004  Starfsskýrsla 2004–2006  Starfsskýrsla 2006–2008  Friðlýsing Héðinsfjarðar