Austurríki

A1 brautin er ein af uppáhaldsbrautum Mika Häkkinen, a.m.k. hefur hann sýnt góðan akstur þar.  Sum ykkar muna kannski eftir því í fyrra er David keyrði Mika útaf í fyrstu beygjunni og karl mátti horfa á eftir 21 bíl fara fram hjá sér þar sem hann sat á grasinu.  Engu að síður náði hann þriðja sætinu með akstri sem seint gleymist.  Þá varð mér að orði að hver þyrfti á keppinautum að halda þegar DC væri með manni í liði?

Mika náði fyrsta sæti í tímatökunni og var ekki mjög óhress með það 

  

Mika sýndi sannfærandi akstur í tímatökunni og fannst manni fátt geta komið í veg fyrir besta tíma sem og varð raunin.  David varð í öðru sæti, Rubens í því þriðja og síðan Schumi, sem hafði átt í basli alla helgina og ekki náð að sýna sitt rétta andlit.  Ferrari bíllinn var í raun langt frá því að funkera fyrir þessa keppni.  Framundan var því gríðarlega spennandi start.  Ljóst var að Ferrari myndi leggja afar mikla áherslu á að koma Schumi áfram til að ná í sem allra flest stig. 

Ein svakalegustu mistök sem ég hef séð eru þegar Prost bílarnir keyrðu á hvorn annan og urðu við það báðir úr leik.  Það fær eiginlega enginn það skilið hvernig svona lagað getur gerst. 

Ég beið spennt eftir startinu og hélt niðri í mér andanum.  Hvað myndi Ferrari gera til þess að koma Schumi fram úr a.m.k. Rubens?  Og þvílíkt start.  Planið hjá Ferrari var að mínu mati það að hafa bílana með miklu bensíni, leggja áherslu á það að bílarnir fyrir aftan kæmust ekki fram úr þeim vegna þessa og að sjálfsögðu að hleypa Schuma upp í 3. sætið.  Það sem ynnist við þetta plan er að þegar McLaren bílarnir færu inn, ættu Ferrari bílarnir enn eftir nokkuð magn af bensíni og gætu því tekið fram úr Mika og DC í viðgerðarhléinu þar sem þeirra bílar væru léttir, aka síðan hratt og vonast til að ná forrystu sem dyggði þeim, þar sem þeir tækju stutt viðgerðarhlé.

Byrjunin lofaði góðu, Rubens og Schumi dönsuðu um í startinu og náðu að koma Schumi upp í þriðja sætið.

 En öll dirfskufull plön bera í sér nokkra áhættu.  Bílarnir fyrir aftan þá lentu í verulegum vandræðum og allt endaði þetta með miklum hvelli í fyrstu beygjunni þar sem maður keyrði á mann.  Zonta keyrði á Schumi og Fisi og Schumi urðu úr leik.  Ralf skemmdi bílinn og fleira og fleira.

Williams liðun gekk afleitlega í tímatökunni en hinn ungi Button hélt uppi merkjum þeirra með því að lenda í 5. sæti í keppninni.

 

Það verður að segjast um kappann Schumacher að hann gefst aldrei upp og þegar hann sá hve ömurleg staða hans var reyndi hann að koma bílnum sínum aftur upp á brautina til þess að vera fyrir og vonast þar með til að keppnin yrði stöðvuð.  Þetta tókst þó ekki hjá honum og þótti honum það heldur slæmt og sagði að brautarstarfsmenn hefðu unnið óþarflega gott verk þegar brautin var hreinsuð.

Schumi var varla farinn út úr bílnum þegar hann var tekinn og hífður í burtu. 

Við áreksturinn gerðist það skemmtilega að rásröðin nánast snérist við.  Þeir bílar sem sluppu best voru þeir sem aftarlega voru og urðu þeir þar með framarlega, s.s. de la Rosa og Salo.  Button færðist líka framar, þar sem hann ræsti 18.  

Þessi sjón hefur varla glatt þann rauða mikið.

Keppnin varð vegna þessa skemmtileg en í raun var fyrirsjáanlegt að með því að bíll Mika héldist í lagi var ekkert sem gat stoppað hann.  Hann var greinilega í fínu formi.  David var nokkuð á eftir honum en enn lengra í burtu var Rubens, sem teljast verður heppinn að hafa haldið sæti sínu eftir fyrstu beygjuna.

Mika sagði eftir keppnina að honum liði vel og fríið hefði gert sér gott.  Rubens þakkaði líka ágæta frammistöðu sína fríi sem hann hafði verið í.  Frentzen sem datt út vegna bilunar, ákvað eftir keppnina að fara bara líka í frí á snekkjunni sinni fyrst allir yrðu svona rosa góðir við hvíldina.

Keppnin um heimsmeistaratitilinn er nú orðin æsi-spennandi og McLaren hefur forystu í bílasmiðakeppninni - nema stigin verði dæmd af liðinu og Mika vegna þess að innsigli vantaði á tölvukassann.  Telja verður að það sé þó ólíklegt.

 Mín tilfinning er sú að Ferrari sé í vandræðum.  Bíllinn hjá þeim virðist ekki standast McLaren bílinn snúninginn og báðir ökumenn McLaren eru í bana stuði.  Feikileg pressa er á Schumi núna og nú verður að duga eða drepast.  Ekki vekur það heldur Ferrari neina gleði, hygg ég, að framundan eru frægar McLaren brautir.

Það er sagt að Mika sé ekki mikið fyrir að sýna tilfinningar sínar en í Austurríki gat hann bara ekki hamið sig.  Hann var eins og smástrákur á jólum.  Honum fannst óhemjugaman að vera til.  Mér líka :-)

Til baka á heimsíðuna mína

Gert 19. júlí 2000

Myndir flestar teknar á formula1.com