Hvað ef engin lögregla væri?

 

Þessari spurningu er velt upp í bókinni Þjófur um nótt eftir  Árna Árnason.  Myndir í bókinni eru e. Halldór Baldursson.  Æskan gaf bókina út árið 1999.  Árni hefur skrifað margar bækur fyrir börn sem eru að byrja lesa sjálfstætt.  Bækur hans eru gjarnan myndskreyttar og hann hefur unnið mikið með Halldóri og Önnu C. Leplar.  Nefna má bækurnar Hví eru hér svo margir kettir og Dregið að landi auk nokkurra lestrarbóka, s.s. Hani lærir að fljúga.

Bókin fjallar um Palla sem er þjófur og skammast sín ekkert fyrir það.  

Í raun er hann heldur ánægður með þá iðju sína.  

Það eru krakkarnir Gunnur og Garpur aftur á móti ekki enda veldur hegðun Palla nokkurri röskun á lífi þeirra.  

Þau fá ekki svefnfrið og meira að segja stelur Palli fjölskyldubílnum hans Garps.  

Þetta næturævintýri þjófsins Páls hefur líka afdrifaríkar afleiðingar fyrir hann sjálfan.  

Sagan gerist í bæ dagsins í dag og mér sýnist helst að við gætum öll átt von á því að pörupiltar eins og Páll séu í nágreninu.

En nú segi ég ekki meira - þið verðið bara að lesa sjálf.

Þessi bók er sérlega heppileg fyrir unga lesendur sem eru að byrja sinn sjálfstæða lestur.  Letrið er gott, myndirnar kallast skemmtilega á við textann, skýra hann og skerpa jafnframt sem þær eru viðbót. 

Oft vill það brenna við að þegar rithöfundar skrifa bækur fyrir unga lesendur sé textinn svo þungur að börnin ráði ekki við hann en svo er ekki í þessari bók.  

Hún er skrifuð fyrir börn og handa börnum.  Viðfangsefnið er einnig spennandi og nokkuð sem flest börn velta fyrir sér - sérstaklega ungir drengir. 

Bókin er innbundin og bókarkápan ætti frekar að laða að en hitt.  Mikilvægt er að bækur handa þessum lesendahóp séu virðulegar útlits en séu ekki eilíflega í bæklingaformi.  

Æskan á heiður skilinn fyrir fráganginn á þessari bók.

 

Sonur minn, 9 ára gamall er alsæll með bókina og hefur tekið hana reglulega á bókasafninu á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru síðan hún var gefin út.  Þessi bók hefur gefið honum nauðsynlegt sjálfstraust í lestrinum og hjálpað honum að sjá að líka hann getur lesið alvöru bækur og ég veit að svo er um fleiri.

Ég mæli því með Þjófur um nótt og vona að bókaforlögin auki framboð á bókum fyrir unga lesendur.

 

Ingveldur Eiríksdóttir