Silverstone
Á páskdag 23. apríl verður Breski kappaksturinn, þremur mánuðum fyrr en vanalega. S.l. viku hefur rignt hundum og köttum í Bretlandi og gott ef það hefur ekki snjóað svolítið líka. Þannig við megum búast við havaríi á Silverstone þetta árið.
Ferrari stendur með pálmann í höndunum eftir sigur í San Marino og að sama skapi gengur lífið heldur erfiðlega hjá McLaren. Þeir hafa verið að prufkeyra nýjan mótor sl. viku og ekki orðið sérlega vel ágengt og einnig hafa þeir verið að keyra bílinn frá því í fyrra. Ljóst er a.m.k. að 2000 bíllinn hefur ekki staðið sig sem skyldi. Hraðinn er óumdeildur en áreiðanleikinn er vart merkjanlegur.
Schumi fótbrotinn - Silverstone 1999
Silverstone er brautin þar sem Schumi lenti í árekstrinum í fyrra en hann segir að það komi ekki til með að hafa nokkur áhrif á sig - enda kaldur karl. Silverstone er líka brautin þar sem McLaren liðið gerði afdrifarík mistök í fyrra þar sem þeim tókst ekki að festa dekk almennilega undir bíl Mika.
Það má því segja að gæfan hafi byrjað að snúa við Mika bakinu á Silverstone því þetta atvik var eitt af mörgum sem fylgdu í kjölfarið sem ollu því að bardaginn við Eddy Irvine um titillinn varð mun erfiðari fyrir Mika en hann þyrfti að hafa orðið.

David og Irvine - Silverstone 1999
David Coulthard varð í fyrsta sæti og Irvine í öðru.
Miklar líkur eru á því að veðrið eigi eftir að spila stóra rullu á Englandi um næstu helgi og fólk sem ég þekki ætlar að fara verulega vel búið á áhorfendapallana. Menn eru nú misánægðir með þessa ráðstöfun og vissulega hefur vægi Silverstone minnkað því keppnin þar hefur löngum verið sú sem gefur gleggsta vísbendingu um hver verði sigurvegarinn.
En svo er ekki nú, en þessi kappakstur ætti að geta verið áughugaverður því ef rignir er ómögulegt að segja til um hver úrslitin verða. Þá koma miðju bílarnir sterkir inn, s.s. Williams, Jordan, BAR, jafnvel Sauber og skyldi Jaguar koma til? Irvine var jú í 7. sæti síðast.

Mark Gene, Jordan í nokkrum vandræðum í San Mariono
Staðreyndin er hins vegar sú að flestir vilja McLaren sigur, jafnvel í 1. og 2. sæti því það gerir keppnina mun meira spennandi. Mika þarf að vinna næstu 6 keppnir með Schumi í 2. sæti til þess að jafna. Vissulega er það nú ekki líklegt en of snemmt er að segja að leikurinn sé unninn hjá Ferrari. Við verðum bara að vona að keppnin verði spennandi það sem eftir er - svona líkt og síðasta keppni.

Mika í San Marino
Hún var um margt frábær - við sáum frábæran akstur og sumir segja að San Marino brautin hafi sjaldan verið betur ekin en hjá Mika þennan dag. Samt varð hann ekki sigurvegari heldur Scumi sem var á frábærri áætlun og komst klakklaust í gegnum hringina 62.

Eitt æsilegasta atvik sögunnar - DC nær 3 sætinu af Rubens
Mika átti í einhverju basli með bílinn og fljúgandi furðuhlutur var líka á vegi hans sem laskaði bílinn eitthvað. Ferrari aðdáendur segja þó orð Mika um þessi mál mjög ýkjukennd.
Framundan er Páskadagur með kappakstri á Bretlandi. Vonandi verðu það skemmtilegur bardagi.
Gert 17. april 2000